Beint á leiðarkerfi vefsins
Hjá Ríkissáttasemjara

Fréttir

1.9.2010

Glæsileg dagskrá hjá Félagsmálaskólanum

Félagsmálaskóli alþýðu hefur nú kynningu á félagslegri fræðslu sem boðið er upp á nú í haust með útgáfu bæklings sem má nálgast á vefnum. Margt spennandi er á dagskrá sem er áhugavert bæði fyrir fulltrúa, trúnaðarmenn og talsmenn stéttarfélaga.

31.8.2010

Ályktun stjórnar BSRB

Á heimasíðu BSRB kemur fram eftirfarandi ályktun.  Stjórn BSRB mótmælir harðlega umfangsmiklum hækkunum á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur. Þær hafa áhrif til hækkunar vísitölu og þar með talið vísitölutengdra lána og koma því almenningi sérstaklega illa. Með þeim veikir stjórn OR þá tilraun til stöðugleika sem reynt hefur verið að koma á í samfélaginu og býður þeirri hættu heim að aðrir fylgi í kjölfarið með gjaldskrárhækkanir.

31.8.2010

Náms- og starfsráðgjöf,

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun og er sérstaklega mikilvæg þeim sem nú takast á við breytingar á vinnumarkaði.  Ráðgjöfin nýtist einnig öllum þeim sem á einhvern hátt standa á tímamótum og eru að takast á við breytt hlutverk eða verkefni. 


Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English

Á döfinni

Laus orlofshús

Yfirlit yfir laus orlofshús og íbúðir má finna hér. Þá viljum við vekja athygli á ýmsum orlofsmöguleikum s.s. flugávísanir, veiðikort og útilegukort.  Eddu og Fosshótels afsláttaávísanir og fleira. Nánari upplýsingar má finna undir orlofstengli.