|
Félag stuðningsfulltrúa í grunnskólum í Reykjavík og Akranesi var stofnað í mars 2007. Félagið er sjálfstæð deild í landssamtökum stuðningsfulltrúa í leik- grunn og framhaldsskólum. Tilgangur félagsins er að efla samheldni félagsmanna auka færni og þekkingu og stuðla að bættum hag þeirra. Félagar geta talist allir starfandi stuðningsfulltrúar í grunnskólum Reykjavíkur og á Akranesi. Fundir eru haldnir a.m.k. tvisvar á ári og annar af þeim er fræðslufundur að hausti. |
![]() |
|
Til þess að hafa samband við stjórn félagsins er hægt að senda póst á formann Ingunni H. Guðjónsdóttur, á netfangið: ingahrodny@simnet.is |
|
Félag stuðningsfulltrúa í grunnskólum boðar stuðningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi til fræðslufundar þann 3. nóvember kl. 20:00 að Grettisgötu 89 í húsi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Október 2009
Ágætu stuðningsfulltrúar.
Nýja heimasíðan hefur vakið viðbrögð ykkar hér í Reykjavík en einnig hjá stuðningsfulltrúum á landsbyggðinni. Það er allt af hinu góða því með síðunni var ætlunin að efla samskipti stuðningsfulltrúa. En við þurfum fleiri félaga.
Að gefnu tilefni vil ég benda á að það þarf að skrá sig í félagið, jafnvel þó viðkomandi hafi einhverntíma látið skrá sig áður. Það félagatal sem ég hef er orðið gamalt og úrelt. Rafræn skráning er á síðunni.
Af óviðráðanlegum orsökum verður fræðslufundur félagsins sem vera átti í september ekki fyrr en í byrjun nóvember, verður hann auglýstur nánar þegar nær dregur.
Bestu kveðjur
Ingunn H Guðjónsdóttir
Til gamans....
Lítil saga úr skólanum
Ungur nemandi var að lesa og í bókinni fékk sögupersónan hosur til að fara í. Þar sem nemandinn vissi ekki hvað hosur voru fékk hann útskýringu á orðinu. Las hann nú áfram þar til kom að orðinu votur og var þá spurður hvort hann vissi hvað það væri að vera votur, það vissi nemandinn ekki heldur og þegar búið var að segja honum það sagði hann; af hverju er ég ekki látinn lesa bækur á íslensku?
Ágúst 2009
Loksins hefur síða Félags stuðningsfulltrúa í grunnskólum litið dagsins ljós. Áður hafði félagið aðgang að bloggsíðu Landssamtaka stuðningsfulltrúa í leik- grunn- og framhaldsskólum, á slóð http://studningur.blogg.is. Á þeirri síðu er að finna allar fréttir og fundargerðir frá upphafi til 2007. En þar sem sú síða er ekki virk lengur var ákveðið að stofna nýja síðu og þótti eðlilegast að hýsa hana hjá stéttarfélaginu okkar. Stjórnin réðst í það verk og fengum við Jakobínu Þórðardóttur framkvæmdastjóra St.Rv. til að sjá um uppsetningu síðunnar. Viljum við þakka henni alla hjálpina, því án hennar hefði þetta ekki tekist.
Félagið er hagsmunasamtök og öll vinna félagsmanna er unnin í sjálfboðavinnu. Allir stuðningsfulltrúar sem starfa í grunnskólum geta gerst félagar og til að gera það auðvelt, þarf aðeins að fylla út rafrænt eyðublað hér að síðunni. Vonast ég til að sem flestir stuðningsfulltrúar gerist virkir félagar svo félagið verði sem fyrst öflugt. Við stuðningsfulltrúar þurfum að standa saman og sýna áhuga á eigin málum og til þess er félagið.
Félagsmenn greiða engin félagsgjöld en St.Rv hefur aðstoðað félagið í sambandi við fundahöld og fleira.
Ég, undirrituð mun fyrst um sinn vera umsjónarmaður síðunnar og geta félagsmenn haft samband við mig með tölvupósti. Ég mun reyna að svara fyrirspurnum eins fljótt og unnt er. Ég hvet stuðningsfulltrúa til að senda efni og fréttir til birtingar á síðunni.
Næst á dagskrá félagsins er fræðslufundurinn sem ætlunin er að halda í september. Verður hann auglýstur seinna.
Bestu kveðjur
Ingunn H Guðjónsdóttir formaður.
26. maí 2009
Ólína J. Jónasdóttir og Ingunn H. Guðjónsdóttir fóru í viðtal til menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur þann 26. maí 2009. Tigangur fundarinns var að vekja athygli ráðherra á starfi og menntun stuðningsfulltrúa í grunnskólum. Með ráðherra var einnig fulltrúi um skólamál. Áttum við gott spjall við þau og tók ráðherra á móti okkur með áhuga og skilnningi. Fengum við gagnlegar ábendingar um leiðir til að vinna að hagsmunamálum stuðningsfulltrúa. Er verið að vinna úr þeim ábendingum.