Beint á leiðarkerfi vefsins

Lög Félags stuðningsfulltrúa

1. grein

Félagið heitir Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. grein

Tilgangur félagsins er: að efla samheldni félagsmanna auka færni og þekkingu og stuðla að bættum hag þeirra.

3. grein

Félagar geta talist allir starfandi stuðningsfulltrúar í grunnskólum Reykjavíkur. Félagsmaður sem lýkur starfsævinni sem stuðningsfulltrúi verður heiðursfélagi. Heiðursfélagar hafa atkvæðisrétt á fundum.

4. grein

Aðalfundur skal haldinn í byrjum mars ár hvert og til hans boðað með 2 vikna fyrirvara. Telst hann þá lögmætur. Í upphafi fundar skal tilnefna fundarstjóra og ritara.

  • Á aðalfundi skal stjórn gera grein fyrir störfum félagsins.
  • Kjósa stjórn eftir því sem reglur segja  (6.grein).
  • Afgreiða önnur mál er fyrir liggja.

5. grein

Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi. Skylt er að boða til lagabreytinga í fundarboði síðasta fundar fyrir aðalfund, enda skal tillaga kynnt á þeim fundi.

6. grein

Stjórn félagsins skipa 5 manns sem skiptir með sér verkum. Skal formaður kosinn til tveggja ára í senn aðrir  til þriggja ára.

7. grein

Stjórn skal boða til funda þegar ástæða er til, þó ekki sjaldnar en tvisvar á ári.Fræðslufund skal hafa árlega í september. Skylt er að boða til fundar ef a.m.k. ¼ félagsmanna krefst þess.

8. grein

Félagið er sjálfstæð deild innan landssamtaka  stuðningsfulltrúa í leik- grunn- og framhaldsskólum á Íslandi.

Samþykkt í mars 2007  




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English