Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

8.3.2010

Líflegur aðalfundur

undefined
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í kvöld. Byrjað var á því að snæða saman súpu kl. 18:30. Hófust svo aðalfundarstörf stundvíslega kl. 19. Á dagskrá voru lögbundin verkefni aðalfundar, skýrsla stjórnar, farið yfir reikninga og kynnt fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Markús Bjarnason trúabador flutti tónlist fyrir fundargesti. Fjörugar umræður voru um ályktanir og sendir fundurinn fimm ályktanir frá sér.

1.3.2010

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna VIÐ GETUM BETUR!

Í tilefni Alþjóðlega baráttudagi kvenna fyrir friði og jafnrétti

er blásið til fundar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 8. mars 2010 kl.17  undir kjörorðinu Við getum betur!
Fundarstjóri verður Kolbrún Halldórsdóttir og ávörp flytja María S. Gunnarsdóttir "Framlag okkar til friðvænlegri heims".  Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann fjallar um Kynbundið ofbeldi. Helga Sif Friðjónsdóttir fjallar um heilsugæslu fyrir jaðarhópa. Barbara Kristinsson flytur erindi sem hún kallar Við getum betur. Andrés Ingi Jónsson um framtíð ófæddra barna. Guðrún Hallgrímsdóttir fjallar um hælisleitendur og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir mun fjalla um fjölmiðla og

Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.

12.2.2010

Stjórnarkjör

Uppstillingarnefnd auglýsti eftir mótframboðum til sjórnar,  engin  mótframboð bárust fyrir auglýstan framboðstíma sem var 8. febrúar síðastliðinn. Þannig að uppstilling uppstillingarnefndar er sjálfkjörinn listi.


Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English

Á döfinni

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Verður haldinn mánudaginn 8. mars næstkomandi að Grettisgötu 89, 1. hæð. Húsið verður opnað klukkan 18:30 og boðið verður upp á súpu og brauð svo mun fundur hefjast klukkan 19 með venjubundnum aðalfundarstörfum. Aðalfundur er opinn öllum félagsmönnum.