Beint á leiðarkerfi vefsins

Fræðslumál

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar leggur mikla áherslu á sí- og endurmenntunarmál bæði við gerð kjarasamninga og einnig í starfi sínu bæði inn og út á við.

Fræðslufulltrúi hefur verið  starfandi hjá félaginu frá árinu 1996.  Frá þeim tíma hefur verið byggð upp öflug trúnaðarmannafræðsla.  Síðastliðin ár hefur einnig verið mikil samvinna milli félagsins og SFR um fræðslu fyrir félagsmenn almennt, en námskeiðin ganga undir nafninu Gott að vita. Fræðsludagskrá er skipulögð í fræðslunefndum félaganna. 

Unnið hefur verið að því að auka réttindi allra félagsmanna til sí- og endurmenntunar. Þar má nefna kafla um fræðslumál í kjarasamningi við Reykjavíkurborg.

Einnig má nefna  símenntunaráætlanir sem allir starfsmenn Reykjavíkurborgar eiga að vera komnir með.

Í kjarasamningi við ríkissjóð, fyrir ríkisstarfsmenn innan félagsins, komu inn ákvæði um greiðslu í Þróunnar- og símenntunarsjóð  og stofnun fræðsluseturs í samvinnu við fleiri stéttarfélög sem semja við ríkissjóð.

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English