Beint á leiðarkerfi vefsins

Símenntun ríkisstarfsmanna

St.Rv. leggur áherslu á að vinna markvisst að símenntunarmálum félagsmanna. Í kjarasamningum við ríkissjóð eru nokkuð aðrar áherslur en þær sem eru í kjarasamningum við  Reykjavíkurborg. Þannig kemur félagið  meira að því að skipuleggja og semja sérstaklega um ákveðin námskeið og símenntun til handa félagsmönnum starfandi hjá ríkinu.

Í kjarasamningum 2001 varð félagið aðili að þróunar- og símenntunarsjóði og er það sameiginlegur sjóður með SFR. Stofnað hefur verið Fræðslusetrið starfsmennt en um það var samið í síðustu kjarasamningum.

Fræðslusetrið Starfsmennt skipuleggur og annast utanumhald á fjölmörgum metnaðarfullum námstilboðum fyrir félagsmenn og hvetjum við félagsmenn til þess að fylgjast með því sem setrið er að bjóða upp á.  

Skoða heimasíðu Fræðslusetursins Starfsmenntar 

 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English