Beint á leiðarkerfi vefsins

Möndull endur- og símenntun starfsmanna LSH

Eflingar - stéttarfélags, SFR, St.Rv. og Sjúkraliðafélags Íslands

Möndull nefnist nýtt fyrirkomulag endur- og símenntunar fyrir starfsmenn LSH í Eflingu - stéttarfélagi, Starfsmannafélagi ríkisstofnana (SFR), Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar (St.Rv) og Sjúkraliðafélagi Íslands.  Áhersla er lögð á að fræðslan nýtist starfsmönnum í starfi. 

Möndull skiptist í þrjá flokka: Grunnnámskeið, valnámskeið og sérhæfð námskeið. Námskeiðin á haustönn 2006 eru frá 18. september til 28. nóvember.  Starfsmenn velja námskeiðin í samráði við sinn yfirmann og hann þarf að staðfesta umsóknina með undirskrift sinni. Námskeiðin eru öll matshæf til launahækkunar. 

Markmið endur- og símenntunar í Möndli 

-         Að auka gæði og fagmennsku í starfi

-         Að efla skilning og þekkingu starfsmanna á þörfum starfseminnar

-         Að efla starfsmenn í faglegum og uppbyggilegum samskiptum

-         Að gefa þátttakendum aukið tækifæri til starfsþróunar með því að 
          takast  á  við ný og breytt verkefni   

-         Að stuðla að frekari starfsánægju

-         Að hvetja starfsmenn til áframhaldandi endur- og símenntunar

Nánari upplýsingar veita Þórleif Drífa Jónsdóttir deildarstjóri á skrifstofu starfsmannamála, sími: 543 1328, netfang: drifa@landspitali.is og Magnea B. Jónsdóttir verkefnastjóri, sími: 543 1332, netfang: magneabj@landspitali.is

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English