
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í kvöld. Byrjað var á því að snæða saman súpu kl. 18:30. Hófust svo aðalfundarstörf stundvíslega kl. 19. Á dagskrá voru lögbundin verkefni aðalfundar, skýrsla stjórnar, farið yfir reikninga og kynnt fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Markús Bjarnason trúabador flutti tónlist fyrir fundargesti. Fjörugar umræður voru um ályktanir og sendir fundurinn fimm ályktanir frá sér.
er blásið til fundar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 8. mars 2010 kl.17 undir kjörorðinu Við getum betur!
Fundarstjóri verður Kolbrún Halldórsdóttir og ávörp flytja María S. Gunnarsdóttir "Framlag okkar til friðvænlegri heims". Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann fjallar um Kynbundið ofbeldi. Helga Sif Friðjónsdóttir fjallar um heilsugæslu fyrir jaðarhópa. Barbara Kristinsson flytur erindi sem hún kallar Við getum betur. Andrés Ingi Jónsson um framtíð ófæddra barna. Guðrún Hallgrímsdóttir fjallar um hælisleitendur og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir mun fjalla um fjölmiðla og
Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.
Uppstillingarnefnd auglýsti eftir mótframboðum til sjórnar, engin mótframboð bárust fyrir auglýstan framboðstíma sem var 8. febrúar síðastliðinn. Þannig að uppstilling uppstillingarnefndar er sjálfkjörinn listi.
Uppstillingarnefnd hefur stillt upp til stjórnar en nú er auglýst eftir mótframboðum. Auglýsing hefur verið send út á vinnustaði þar sem félagsmenn starfa. Uppstillinganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur gert eftirfarandi tillögur um félagsstjórn: Formaður næstu tvö ár: Garðar Hilmarsson, Engjaseli 31, Reykjavík. Í stjórn til tveggja ára: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Álfaskeiði 48 Hafn.Guðrún Árnadóttir, Bollagötu 16 Reykjavík. Ingveldur Jónsdóttir, Grenigrund 10 Akranesi. Jónas Engilbertsson, Hólabergi 2 Reykjavík. Sigrún Helga Jónsdóttir, Salthömrum 2 Rvk.
Önnur framboð, ásamt meðmælum 75 lögmætra félagsmanna hið minnsta (með nafni, kennitölu og vinnustað), þurfa að berast til kjörstjórnar St.Rv. Gunnars Inga Jónssonar, skrifstofu St.Rv. Grettisgötu 89, 105 Reykjavík eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 8. febrúar 2010. auglýsing
| Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar flytur fyrirlestur í BSRB húsinu sem nefnist “Andleg sjálfsvörn” fimmtudaginn, 4. febrúar kl. 16. Fyrirlesturinn Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks. Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Fyrirlesturinn er afar athyglisverður og uppbyggjandi á erfiðum tímum. |
![]() |
| Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar stóð fyrir smásagnasamkeppni nýlega. Það bárust 11 sögur í keppnina. Dómnefnd var skipuð þeim Davíði Stefánssyni, Dagnýju Guðmundsdóttur og Stefáni Pálssyni. Niðurstaða dómnefndar var að sagan „Grafið í sand“ varð í fyrsta sæti, höfundur hennar er Jónína Óskarsdóttir sem starfar á Ársafni. Sagan „Hjá ömmu“ eftir Ingibjörgu Hafliðadóttir sem starfar á aðalsafni Borgarbókasafns var í öðru sæti. Í þriðja sæti var sagan „Fiskur á þurru“ eftir Helga M. Sigurðsson sem starfar á Sjóminjasafninu. Fyrir stuttu fór fram verðlaunaafhending til sigurvegara í samkeppninni og óskum við vinningshöfum innilega til hamingju. |
Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundaði í gær, 8. desember. Góð mæting var á fundinn sem hófst með kynningu á félaginu fyrir nýja fulltrúa og síðan var fundur með öllu fulltrúaráðinu þar sem Garðar Hilmarsson formaður fór yfir starfið í haust og starfið framundan. Haukur Ingi Jónasson flutti mjög áhugavert erindi um þjóðfundinn og merkingu hans fyrir stéttarfélög.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar býður félagsmönnum og vinum þeirra upp á kvöldstund með upplestur úr jólabókum og söng BSRB kórsins fimmtudagskvöldið 10. desember kl. 20 að Grettisgötu 89, 1. hæð. Þórarinn Eldjárn les upp úr bók sinni Alltaf sama sagan og Hlín Agnarsdóttir les upp úr bók sinni Blómin frá Maó. Kór BSRB mun syngja. Boðið verður upp á kakó og smákökur.
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í janúar. Fyrsta þrep verður haldið 18. - 20 janúar. Annað þrep verður haldið 25. - 27. janúar, þriðja þrep 1. - 3. febrúar, fjórða þrep 8. - 10. febrúar, fimmta þrep er kennt dagana 15. - 17. febrúar og sjötta þrep 1. og 2. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.