Á morgun fimmtudaginn 8. desember kl. 15 verður kynning á nýundirrituðum kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg. Fundurinn er haldinn að Grettisgötu 89, 4 hæð. Hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér kjarasamninginn og jafnframt að taka þátt í kosningu um hann.
Starfslokanámskeið verður haldið í
Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu
Námskeiðið er 30 stundir og er fyrir fólk sem hefur einhverja undirstöðukunnáttu í dönsku, en vill treysta grunninn og byggja ofan á hann. Áhersla er á talmál.
Fimmtudaginn 20. október verður námskeið um fjármál heimilanna. Þar er fjallað um fjárhagsáætlanir, kostnað heimilisins sparnað, lán, ábyrgðarskuldbindingar og úrræði þeirra sem skulda.
Næstkomandi miðvikudag eða 5. október hefur verið boðað til fyrsta formlega samningafundar milli Reykjavíkurborgar og samninganefndar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Fundað verður í húsakynnum sáttasemjara.
Hans Engelberts framkvæmdastjóri PSI, Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, heldur fyrirlestur á vegum BSRB í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 23. júní kl. 9.30 árdegis.
Athugið að síðasti dagur til þess að ganga frá samningi um orlofshús er 10. maí. Hægt er að ganga frá greiðslu í gegn um síma, ef greiða á með korti eða með greiðslu í gegn um netbanka. Einnig eru félagsmenn alltaf velkomnir að á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3. hæð.
Vinnueftirlit ríkisins stendur fyrir málþingi um áfengis- og vímuvarnir á vinnustöðum á Grand Hóteli, 14. apríl 2005, í salnum Hvammi frá kl. 9:00 – 12:00. Málþingið er öllum opið og er aðgangseyrir kr. 1500.
Fimmtudaginn 7. apríl verður haldinn fundur í Fulltrúaráði St.Rv. kl. 10:30 á Grettisgötu 89.
Borgarstjóri mun mæta ásamt embættismönnum og ræða stjórnkerfisbreytingar sem eru á döfinni hjá Reykjavíkurborg.
Félagsmenn athugið! Þriðjudaginn 5. apríl rennur út umsóknarfrestur til þess að sækja um í orlofshús og íbúðir félagsins. Það er hægt að nálgast umsóknareyðublað á netinu undir orlofsmál.
Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem semur við Reykjavíkurborg, Strætó bs og Faxaflóahafnir hefur nú tekið til starfa. Eitt af fyrstu verkefnum var að fara á námskeið BSRB í samningatækni...
Fundur á Grand Hótel – Hvammi 8. mars kl. 12.00 – 13.15. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna undir heitinu Jafnrétti á vinnumarkaði – ábyrgð atvinnurekenda
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn laugardaginn 5. mars næstkomandi kl. 13.00 að Grettisgötu 89, 4 hæð. Dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr. félagslaga. Reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár liggja frammi á skrifstofu þess á Grettisgötu 89 síðustu dagana fyrir aðalfund.
Föstudaginn 19. febrúar lauk kosningu til stjórnar St.Rv. Kosningin fór á þann veg að Jón Ingi Hilmarsson, Ragnhildur Helgadóttir, Víglundur Rúnar Jónsson, Þóra Sigurðardóttir og Þórdís Sigurðardóttir voru kjörin í stjórn til næstu tveggja ára.