Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Jólaball -miðasala hafin

Sala miða hafin á jólaball Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR. Ballið verður í Súlnasal Hótel Sögu, föstudaginn 29. desember kl. 16.

jolamynd

Lagabreyting samþykkt

Þriðjudaginn 5. desember var haldinn auka aðalfundur hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Það var aðeins eitt mál á dagskrá fundarins en það var tillaga stjórnar félagsins að lagabreytingu sem varðar félagssvæðið þannig að hægt sé samkvæmt lögum félagsins að taka á móti félögum frá Akranesi. Tillagan var samþykkt einróma á fundinum.

Laus hús í Munaðarnesi og á Úlfljótsvatni

Félagsmenn athugið það eru einhver laus hús um næstu helgi bæði á Úlfljótsvatni og í Munaðarnesi. Ef þið hafði áhuga hafið þá samband við skrifstofu félagsins í síma 525-8330 eða netfangið strv@bsrb.is Allir bústaðirnir eru með heitum pottum.

 

Vetrarleiga orlofshúsa

Félagsmenn athugið að vetrarleiga orlofshúsa hefur ekki áhrif á úthlutun orlofshúsa yfir sumartímann og um páska. Félagið leigir út orlofshús í Munaðarnesi og á Úlfljótsvatni og íbúð á Akureyri yfir vetrartímann. Allir bústaðirnir eru með heitum pottum.

Ertu ungur, áttu „unga“ eða vinnur þú með „ungum“?

Ef svo er þá átt þú erindi á hádegisfróðleik um vinnu- verndarmál og ungt fólk!  
Í tilefni vinnuverndar- vikunnar standa St.Rv. og SFR fyrir hádegisverðar fyrirlestri föstudaginn 20. október kl. 12-12.50, en yfirskrift vikunnar þetta árið er Örugg frá upphafi. Boðið er upp á samloku og drykk. Skráing á Jakobina@strv.bsrb.is eða 525-8330.

Vetrarleiga orlofshúsa

Orlofshús félagsins og íbúð á Akureyri eru í útleigu allann ársins hring fyrir félagsmenn. Vakin er athygli á því að vetrardvöl í orlofshúsunum dregur ekki úr réttindum félagsmanna til sumar- eða páskaúthlutunar. Upplýsingar og bókun fer fram í síma 525-8330 eða í netfang: strv@bsrb.is

 

Laus íbúð á Akureyri

Íbúð félagsins á Akureyri, við Hrísalund 2, er aldrei þessu vant laus næstu helgar í september endilega hafið samband við félagið ef þið hafið áhuga á að leigja þessa fínu íbúð hvort sem eru um helgi eða í vikuleigu.

 

Málþing -Starfsumhverfi vaktavinnufólks - Hvert stefnir

Föstudaginn 17. mars stendur BSRB, BHM, Reykjavíkurborg, fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir málþingi um starfsumhverfi vaktavinnufólks.  Málþingið er haldið í Súlnasal Hótel sögu frá kl. 9:00-12:00.

Alþjóða baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

Í tilefni alþjóða friðardags kvenna fyrir friði og jafnrétti verður haldinn opinn fundur í Tjarnarsal Ráðhús Reykjavíkur 8. mars kl. 17.  undir yfirskriftinni Þróunarað-stoð – í þágu hverra? 

 

Aðalfundur St.Rv.

Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 4. mars kl. 13 að Grettisgötu 89, 4. hæð. Á dagskrá fundarins eru lögbundin aðalfundarstörf. Farið verður meðal annars yfir ársskýslu stjórnar auk reikninga félagssjóðs og annarra sjóða.

 

Hið gullna jafnvægi: Gjöfult verkefni

Ráðstefna hgj.is Hið gullna jafnvægi: Gjöfult verkefni verður haldin 16. febrúar 2006 á Nordica hótel. Á dagskrá ráðstefnunnar eru fróðleg og spennandi erindi einkum ætluð þeim sem starfs síns vegna geta stuðlað að bættu starfsumhverfi, auknum sveigjanleika og samræmingu vinnu og einkalífs

Sveigjanleg starfslok

Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnu um sveigjanleg starfslok í samvinnu við ASÍ, BHM, BSRB, Landssamband eldri borgara, Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga í Salnum í Kópavogi, fimmtudaginn 9. febrúar. Ráðstefnan hefst kl. 13. 15 og lýkur kl. 16.20. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Stjórnarkjör St.Rv. 2006

Nú hefur Uppstillingarnefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar lokið störfum. Tillaga hennar um stjórn St.Rv. fyrir árin 2006-2007 kemur fram í eftirfarandi auglýsingu.

 

 

Starfsmönnum Strætó bs. kynntur kjarasamningur

Kynning stendur nú yfir á nýgerðum kjarasamningi Starfsmannafélgs Reykjavíkurborgar og Strætó bs. Tveir fundir eru miðvikudaginn 11. janúar fyrri kl. 10 og síðari kl. 20 í kvöld, í kjölfar kynningar fer fram atkvæðagreiðsla um samninginn.

Fulltrúar St.Rv. hjá Strætó bs funda

Fulltrúar úr 9. deild fulltrúaráðs St.Rv. funduðu í dag ásamt með formanni félagsins og samninganefnd. Samþykkt var ályktun þar sem trausti er lýst á samninganefndina og henni veitt fullt umboð og nauðsynlegur frestur til þess að ljúka gerð kjarasamnings við Strætó bs. Samþykkt var að þessi sami hópur hittist aftur n.k. þriðjudag og beri saman bækur sínar.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English