Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Fulltrúaráðsfundur í janúar

Næsti fundur fulltrúa og trúnaðarmanna í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar verður haldinn 9. janúar 2008 kl. 10:00. Á þeim fundi er skipað í Uppstillingarnefnd fyrir stjórnarkjör í félagið. Hér á síðunni er hægt að sjá alla fundi fulltrúaráðs á vorönn.

JÓLABALL

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélag í almannaþjónustu halda sameiginlegt jólaball fimmtudaginn 27. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveit sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kring um jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðasala er hafin á skrifstofu félagsins að  Grettisgötu 89, 3ju hæð. Miðaverð er 600 kr.

Fundur fulltrúaráðs

Fundur verður í Fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 13. desember nk. kl. 13. Fundurinn er haldinn að Grettisgötu 89, 1. hæð. Við hvetjum fulltrúa til þess að mæta á fundinn. Sjá nánar dagskrá.

 

Desemberuppbót - persónuuppbót

Í kjarasamningi er kveðið á um að greiða skuli desemberuppbót 1. des. Í kjarasamningi við Reykjavíkurborg, Strætó bs., Orkuveituna og Faxaflóhafnir er desemberuppbót fyrir árið 2007 47.000 krónur. Í samningum, fyrir ríkisstarfsm., við fjármálaráðuneytið er upphæðin 41.800 krónur.

Fulltrúaráðsfundur

Þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13 eru nýir fulltrúar boðaðir á fundinn og starfssemi félagsins kynnt fyrir þeim. Endurkjörnir fulltrúar bætast í hópinn kl. 14 og haldinn verður fyrsti fundur nýkjörins fulltrúaráðs. Í lok fundar þá bætast fráfarandi fulltúar í hópinn og boðið verður upp á léttar veitingar milli klukkan 15 og 17. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Námskeið fyrir fulltrúa og trúnaðarmenn

Nú er hafin skráning á námskeið fyrir nýkjörna fulltrúa og trúnaðarmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Námskeiðið verður haldið 21. 22. og 29. nóvember, 3ja daga námskeið, kennt er á milli kl. 8:15-16:15. Námskeiðið fer fram að Grettisgötu

Póstkosningar í fulltrúaráð

Félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar sem fengið hafa heimsendan atkvæðaseðil vegna fulltrúaráðskosninga, eru hvattir til að gera skil hið allra fyrsta.

                                                                             Kjörstjórnin

Kosningum í fulltrúaráð eru enn í gangi

Formaður kjörstjórnar segir samstarf við kjörstjórnir deildanna hið best. Það sem helst hefur tafið kosningar er að það hefur tekið sinn tíma að fá fólk í framboð. Kosningum er þó lokið í þremur deildum af 12 það er 4. deild, sem er Umhverfis- og framkvæmdasvið,  9. deild sem er deils Strætó bs. og í 10. deild, sem er deild menningarstofnana.

Kosningar í Fulltrúaráð

Á tímabilinu 15.- 30. október eiga að standa yfir kosningar í Fulltrúaráð félagsins. Kjörstjórar hafa verið skipaðir í allar deildir. Hvetjum við áhugasama félagsmenn til þess að hafa samband við kjörstjóra í sinni starfsdeild ef þeir vilja bjóða sig fram.

Stuðningsfulltrúar funda

Fimmtudaginn 4. október kl. 17 verður fundur hjá stuðningsfulltrúum í grunnskólum Reykjavíkur. Þórkatla Þórisdóttir, mun flytja erindi sem hún kallar dropinn holar steininn. Einnig verður fjallað um hagsmunamál stuðningsfulltrúa. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 89 á 1. hæð.

Félags stuðningsfulltrúa fundar

Fimmtudaginn 4. október kl. 17 verður fundur hjá stuðningsfulltrúum í grunnskólu, Reykjavíkur. Þórkatla Þórisdóttir, mun flytja erindi sem hún kallar dropinn holar steininn. Einnig verður fjallað um hagsmunamál stuðningsfulltrúa.

Hádegisfróðleikur

Á fimmtudaginn 27. september verður hádegisfyrirlestur í félagamiðstöðinni á Grettisgötu 89, 1. hæð. Sólveig Jónasdóttir frá alþjóðahúsi mun fjalla um fjölmenningu á íslenskum vinnustöðum. Boðið er upp á samloku og drykk undir fyrirlestrinum. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig.

 

Kvennafn lækkar launin

Miðvikudaginn 19. sep. kl. 16:30-18 á Grettisgötu 89 verður fyrirlestur Þorláks Karlssonar, forseta viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavíkur, undir nafninu Kvennafn lækkar launin - Tilraun á mögulegum skýringum á óútskýrðum launamuni kvenna og karla. 

Fulltrúaráð fundar

Fulltrúar og trúnaðarmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundar á fimmtudaginn 13. september kl. 13 að Grettisgötu 89. Hvetjum við fulltrúa til þess að fjölmenna á fundinn.

Orlofshús og íbúðir

Félagsmenn eru hvattir til þess að hafa samband við félagið ef þeir vilja fá orlofshús eða íbúðir félagsins að leigu nú á haustdögum til til dæmis berjaferða eða haustlitaferða. Gott er annað hvort að hringja í síma 525-8330 eða senda tölvupóst í netfangið strv@bsrb.is.

Hótelmiðar og orlofshús

Öll orlofshús félagsins eru uppbókuð 3-10 ágúst. En einhver hús eru enn laus í vikunum eftir það. Enn er til eitthvað af hótelmiðum á bæði Eddu hótel og Fosshótelin. Nánari upplýsingar er að finna um orlofshús, íbúðir og hótelmiða á orlofssíðu.

 

Viltu komast í orlofshús?

Öll orlofshús félagsins eru uppbókuð 3-10 ágúst. En einhver hús eru enn laus í vikunum eftir það. Enn er til eitthvað af hótelmiðum á bæði Eddu hótel og Fosshótelin. Sjá nánar undir orlofssíðu.

Laus orlofshús víðsvegar um land

Þó nokkuð er laust í orlofshús félagsins næstu tvær vikurnar og einnig á öðrum tímum yfir sumarið. Meðal staða sem lausir eru næstu vikurnar eru Eiðar, Munaðarnes, Úlfljótsvatn og Akureyri. Við hvetjum félagsmenn til þess að hafa samband við félagið ef þeir vilja fá orlofshús og íbúðir að leigu.

Orlofsfé greitt 1. júní

Orlofsuppbót fyrir árið 2007 er greidd út 1. júní næstkomandi og er fjárhæðin 23.000 miðað við fullt starf í heilt ár en annars hlutfallslega. En í kjarasamningi er kveðið skýrt að því hvernig því er farið.

 

Óður til Reykjavíkur

Kór borgarstarfsmanna halda sínu fyrstu opinberu tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur 19. maí kl. 16. Gróa Hreinsdóttir er stjórnandi kórsins. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður Menntaráðs Reykjavíkur og Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngja einsöng. Sönglög um Reykjavík er uppistaðan í dagskránni.

Icelandic for foreigners

Icelandic for foreigners - Framvegis símennturnarmiðstöð heldur námskeið í íslensku  í samvinnu við Alþjóðahús. Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna, eða íslenska 1, 2 og 3. Við hvetjum erlenda félagsmenn til þess að kynna sér málið og bendum á að þeir geti sótt um styrk í starfsmenntasjóð félagsins.

1. maí - verkalýðsdagurinn

Hátíðarhöld á fyrsta maí hefjast við Hlemm, en gangan hefst kl. 13:30 þar sem Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngunni. Gengið verður niður laugarveg að Ingólfstorgi en þar verður útifundur í tilefni dagsins. Auk hefðbundinna ávarpa mun hljómsveitin Baggalútur og Gospelkór Reykjavíkur skemmta fólki. 

Dreifibréf BSRB -fjallað um þjóðfélagsmál

Bandalag starfsmanna ríkis og bæja eða BSRB, sem Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar er aðili að, hefur gefið út rafrænt fréttabréf frá því í október 2006. Í dreifibréfunum er fjallað um ýmis áhugaverð þjóðfélagsmál svo sem launajafnrétti, skattamál, verðbólgu, erlent vinnuafl

LOKAÐ á skrifstofu 12. apríl

Starfsmenn og stjórn félagsins verður með starfsdag fimmtudaginn 12. apríl þannig að skrifstofa félagins verður lokuð þann dag. Við biðjum félagsmenn um að sína því skilning. Með bestu kveðju stjórnin.

 

Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl

Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir hjá félaginu, fyrir sumarið 2007 rennur út 1. apríl. Hægt er að sækja um á rafrænu umsóknareyðublaði hér á síðunni.

 

Aðalfundur St.Rv. 2007

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn laugardaginn 10. mars 2007 kl. 13 að Grettisgötu 89, 1 hæð. Á dagskrá eru öll venjubundi aðalstörf auk lagabreytinga. Boðið verður upp á kaffi í lok fundar. Boðið verður upp á rútuferð frá Akranesi á aðalfundinn.

 

Stjórnarkjör 22. og 23. febrúar

Kosning í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar mun fara fram fimmtudaginn 22. og föstudaginn 23. febrúar nk. milli kl. 9- 17 báða dagana að Grettisgötu 89, 2. hæð. Kosning á Akranesi fer fram að Suðurgötu 62 fimmtudaginn 22. febrúar frá kl. 15-18.  sjá auglýsingu




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English