Næsti fundur fulltrúa og trúnaðarmanna í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar verður haldinn 9. janúar 2008 kl. 10:00. Á þeim fundi er skipað í Uppstillingarnefnd fyrir stjórnarkjör í félagið. Hér á síðunni er hægt að sjá alla fundi fulltrúaráðs á vorönn.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélag í almannaþjónustu halda sameiginlegt jólaball fimmtudaginn 27. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveit sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kring um jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðasala er hafin á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3ju hæð. Miðaverð er 600 kr.
Fundur verður í Fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 13. desember nk. kl. 13. Fundurinn er haldinn að Grettisgötu 89, 1. hæð. Við hvetjum fulltrúa til þess að mæta á fundinn. Sjá nánar dagskrá.