Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir hjá félaginu, fyrir sumarið 2007 rennur út 1. apríl. Hægt er að sækja um á rafrænu umsóknareyðublaði hér á síðunni.
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn laugardaginn 10. mars 2007 kl. 13 að Grettisgötu 89, 1 hæð. Á dagskrá eru öll venjubundi aðalstörf auk lagabreytinga. Boðið verður upp á kaffi í lok fundar. Boðið verður upp á rútuferð frá Akranesi á aðalfundinn.