Fundur var haldinn í gær, 11. 12. Þar sem Gunnar Rúnar Matthíasson sjúkrahúsprestur var með stórgott erindi. Líflegar umræður voru í lok fundar um þjóðfélagsmál. Fulltrúaráðið samþykkti samhljóða ályktun.
Póstkosning um kjarasamninginn við Reykjavíkurborg lýkur kl. 16:00 á fimmtudag 11. des. Þeir sem ekki hafa fengið heimsendan kjörseðil geta greitt atkvæði á skrifstofu félagsins frá kl. 09:00 - 16:00. Samkomulag í heild sinni á PDF formi má nálgast hér.
Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun fimmtudag 4. desember kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er Framtíðin - með eða án krónu. Framsögu hafa
Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg var undirritaður á laugardag 29. nóvember. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember til 31. ágúst. Hækkun á launatöflu er 20.300 kr. Samkomulag náðist um yfirlýsingu um að aðilar gengju til þjóðarsáttaviðræðna. Samkomulag í heild sinni á PDF formi má nálgast hér.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg náðist á sjötta tímanum í dag, laugardaginn 29. nóvember. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember til 31. ágúst. Hækkun á launatöflu er 20.300 kr. Samkomulag náðist um yfirlýsingu um að aðilar gengju til þjóðarsáttaviðræðna.
Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar hafa verið hjá ríkissáttasemjara í allan dag og hafa fundað nokkru sinnum . Viðræður halda áfram í kvöld. Samninganefnd St.Rv., vegna bæjarstarfsmanna á Akranesi, fór á fyrsta fund sinn með Launanefnd sveitarfélaga í dag.
Samninganefnd okkar við Reykjarvíkurborg hélt áfram að funda í morgun, við hópinn hefur nú bæst samninganefnd okkar frá Akranesi sem á í viðræðum við launanefnd Sveitarfélaganna.
Lítið hefur þokast í samkomulagsátt á báðum vígstöðvum.
Fundir eru í flestum fundarherbergjum og á öllum göngum. Virðist því einhver skriður kominn á umræður en þó er óljost hvort frekari frétta sé að vænta í dag.
Enn standa Kjarasamningsviðræður yfir í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Félagið leggur ofuráherslu að ná samningum sem allra fyrst. Margar aðrar samninganefndir eru einnig í viðræðum við Reykjavíkurborg og Launanefnd Sveitarfélaga við sömu aðstæður.
Samninganefnd Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar funduðu í gærdag.
Kjarasamningsviðræðum
verður haldið áfram í dag
þriðjudaginn 25. nóvember.
Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og samninganefnd Reykjavíkurborgar funduðu í dag fimmtudag. Reykjavíkurborg svaraði því sem félagið hafði lagt fram á síðastliðnn þriðjudag. Engin niðurstaða var á fundinum. Næsti fundur verður haldinn á mánudaginn 24. nóvember.
Á fundi samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar í gær, þriðjudaginn 17. nóvember, var farið yfir stöðuna. Eftir nokkrar umræður var ákveðið að halda viðræðum áfram á fimmtudag.
Samninganefndir Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar hefja viðræður á ný í dag eftir rúmlega viku hlé. Reykjavíkurborg óskaði eftir að beðið væri eftir því að fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna væri lokið áður en viðræður héldu áfram.
Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu.
Miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20 verður haldinn fundur í Félagi stuðningsfulltra í Reykjavík og Akranesi. Fundurinn er haldinn að Grettisgötu 89 1. hæð. Á fundinum verður Kristján Ari Arason með fræðsluerindi. Fulltrúar frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar munu mæta á fundinn og fara yfir stöðuna í kjarasamningsviðræðunum.
Stofnaður verður formlegur gönguhópur sem hittist tvisvar í mánuði til að byrja með, 2. og 4. hvern mánudag kl. 17.30 fyrir framan aðalinngang Skautahallarinnar. Sjáumst 10. nóvember næstkomandi.
miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 -18:00 um stöðu skuldara og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna stöðugt hækkandi lána vegna efnahagskreppunnar. Fulltrúar stofnana sem mæta eru frá félagsmálaráðuneytinu, LSR, Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og Íbúðalánasjóði. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga. Sjá auglýsingu
Hér gefst félagsmönnum tækifæri til þess að koma á framfræri hugmyndum sínum og ábendingar vegna komandi kjarasamninga. Samninganefndir félagsins munu svo nota þessar hugmyndir og ábendingar í sinni markmiðssetningu. Hugmyndir
Sumarhús og íbúðir félagsins eru enn fyrst og fremst í vikuleigu. Ef hús eru laus á miðvikudegi þá leigir félagið þau í helgarleigu. Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga í síma 525-8330.
Ríkisstarfsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar samþykktu kjarasamning BSRB við ríkið með 92,5% atkvæða þeirra sem greiddu atkvæði. 114 voru á kjörkskrá og af þeim greiddu atkvæði 53 eða 46%.
Mun meiri aðsókn er í ferð eftirlaunafólks en gert var ráð fyrir og varð fljótlega upppantað í ferðina og biðlisti myndaðist
BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan samning bandalagsins við ríkið.
Félagsmönnum er bent á að hægt er að sækja um Iceland Express afsláttarmiða undir liðnum: Orlofsmál, hér á síðunni.
Fyrsti formlegi samningafundur BSRB og aðildarfélaga bandalagsins með samninganefnd ríkisins verður hjá Ríkissáttasemjara í dag. kl. 14.00 Á fundinn mæta fulltrúar þeirra aðildarfélaga BSRB sem eiga lausa samninga við ríkið.
Þriðjudaginn 15. apríl kl. 13 verður fundur í Fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Meðal annars mun Sigurður Jóhannesson Hagfræðingur í HÍ fjalla um efnahagsmál. Fulltrúar og trúnaðarmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á fundinn.
Verður haldinn að Grettisgötu 89, 1. hæð laugardaginn 8. mars nk. kl. 13. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein félagslaga. Ársreikningar fyrir síðastliðið ár liggja frammi á skrifstofu þess að Grettisgötu 89, 3ju hæð síðustu dagana fyrir aðalfund.
Fimmtudaginn 21. febrúar kl. 12-12.50 býður St.Rv. félagsmönnum upp á hádegisfróðleik um jafnréttismál að Grettisgötu 89, 1. hæð. Mikilvægt er að fólk skrái sig þar sem boðið er upp á samloku og drykk. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, fjallar um endurskoðun á jafnréttislögunum.
Nú er framboðsfrestur til stjórnar liðinn. Ekkert framboð barst og stendur því tillaga Uppstillingarnefndar um stjórn til næstu tveggja ára. Verður tillagan kynnt formlega á aðalfundi félagsins sem verður haldinn 8. mars n.k.