Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Kjarasamningur undirritaður

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg náðist á sjötta tímanum í dag, laugardaginn 29. nóvember. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember til 31. ágúst. Hækkun á launatöflu er 20.300 kr. Samkomulag náðist um yfirlýsingu um að aðilar gengju til þjóðarsáttaviðræðna.

Fréttir úr Karphúsinu

Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar hafa verið hjá ríkissáttasemjara í allan dag og hafa fundað nokkru sinnum . Viðræður halda áfram í kvöld. Samninganefnd St.Rv., vegna bæjarstarfsmanna á Akranesi, fór á fyrsta fund sinn með Launanefnd sveitarfélaga í dag.

Kjaraviðræður halda áfram

Samninganefnd okkar við Reykjarvíkurborg hélt áfram að funda í morgun, við hópinn hefur nú bæst samninganefnd okkar frá Akranesi sem á í viðræðum við launanefnd Sveitarfélaganna.

Lítið hefur þokast í samkomulagsátt á báðum vígstöðvum.

Fjöldi stéttarfélaga funda stíft hjá Ríkissáttasemjara

Fundir eru í flestum fundarherbergjum og á öllum göngum. Virðist  því einhver skriður kominn  á umræður en þó er óljost hvort frekari frétta sé að vænta í dag.

Samningaviðræður standa enn yfir

Enn standa Kjarasamningsviðræður yfir í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Félagið leggur ofuráherslu að ná samningum sem allra fyrst. Margar aðrar samninganefndir eru einnig í viðræðum við Reykjavíkurborg og Launanefnd Sveitarfélaga við sömu aðstæður.

Samninganefndir funda

Samninganefnd Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar funduðu í gærdag. 
Kjarasamningsviðræðum 
verður haldið áfram í dag
þriðjudaginn 25. nóvember.

Kjarasamningsviðræður við Reykjavíkurbor

Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og samninganefnd Reykjavíkurborgar funduðu í dag fimmtudag. Reykjavíkurborg svaraði því sem félagið hafði lagt fram á síðastliðnn þriðjudag. Engin niðurstaða var á fundinum. Næsti fundur verður haldinn á mánudaginn 24. nóvember.

Fundur með samninganefnd Reykjavíkurborgar

Á fundi samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar í gær, þriðjudaginn 17. nóvember, var farið yfir stöðuna. Eftir nokkrar umræður var ákveðið að halda viðræðum áfram á fimmtudag.

Viðræður hefjast á ný

Samninganefndir Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar hefja viðræður á ný í dag eftir rúmlega viku hlé. Reykjavíkurborg óskaði eftir að beðið væri eftir því að fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna væri lokið áður en viðræður héldu áfram.

Reynsla Færeyinga og Finna

Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu.

Fundur stuðningsfulltrúa

Miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20 verður haldinn fundur í Félagi stuðningsfulltra í Reykjavík og Akranesi. Fundurinn er haldinn að Grettisgötu 89 1. hæð. Á fundinum verður Kristján Ari Arason með fræðsluerindi. Fulltrúar frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar munu mæta á fundinn og fara yfir stöðuna í kjarasamningsviðræðunum.

Stafgönguhópur

Stofnaður verður formlegur gönguhópur sem hittist tvisvar í mánuði til að byrja með, 2. og 4. hvern mánudag kl. 17.30 fyrir framan aðalinngang Skautahallarinnar. Sjáumst 10. nóvember næstkomandi.

BSRB með opinn fund

miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 -18:00 um stöðu skuldara og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna stöðugt hækkandi lána vegna efnahagskreppunnar. Fulltrúar stofnana sem mæta eru frá félagsmálaráðuneytinu, LSR, Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og Íbúðalánasjóði. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga.  Sjá auglýsingu




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English