Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Fulltrúaráðsfundur

Fundur var haldinn í gær, 11. 12. Þar sem Gunnar Rúnar Matthíasson sjúkrahúsprestur var með stórgott erindi. Líflegar umræður voru í lok fundar um þjóðfélagsmál. Fulltrúaráðið samþykkti samhljóða ályktun.

 

Póstkosning um Kjarasamning félagsins við Reykjavíkurborg

Póstkosning um kjarasamninginn við Reykjavíkurborg lýkur kl. 16:00 á fimmtudag 11. des. Þeir sem ekki hafa fengið heimsendan kjörseðil geta greitt atkvæði á skrifstofu félagsins frá kl. 09:00 - 16:00. Samkomulag í heild sinni  á PDF formi má nálgast hér. 

Framtíðin - með eða án krónu

Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun fimmtudag 4. desember kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er Framtíðin - með eða án krónu. Framsögu hafa
Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg var undirritaður á laugardag 29. nóvember. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember til 31. ágúst. Hækkun á launatöflu er 20.300 kr. Samkomulag náðist um yfirlýsingu um að aðilar gengju til þjóðarsáttaviðræðna. Samkomulag í heild sinni  á PDF formi má nálgast hér. 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English