Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Fulltrúaráðsfundur

Fyrsti fundur nýs fulltrúaráðs verður Þriðjudaginn 8. desember. Nýjir fulltrúar eru boðaðir kl. 13, endurkjörnir fulltrúar kl. 14 og þeir fulltrúar sem hafa verið síðastliðnn tvö ár og halda ekki áfram eru boðaðir kl. 16 þar sem þeir verða kvaddir.  Gestur á fundinum verður Haukur Ingi Jónasson en hann mun fjalla um þjóðfundinn og hvað stéttarfélög geti nýtt sér í niðurstöðum þjóðfundar.

Réttindi og skyldur

Nokkur laus pláss á hádegisfyrirlestur um Réttindi og skyldur opinberra starfsmanna föstudaginn 4. desember nk. Félagsmenn þurfa að skrá sig á heimasíðu http://www.strv.is/namskeid/
eða í síma 525-8330.

Afsláttur í leikhús!

Borgarleikhúsið býður félagsmönnum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar 1000 kr. afslátt af hverjum miða á sýninguna Við borgum ekki! þann 14. 11. kl. 22. Sýningin er nú er komin á stóra svið Borgarleikhússins. Með afslætti kostar miðinn aðeins 2450. Vinsamlegast takið fram við miðakaupin að verið sé að nýta tilboðið. Um sýninguna

Námskeið fyrir fulltrúa og trúnaðarmenn

Hvetjum nýkjörna fulltrúa og trúnaðarmenn til þess að skrá sig á grunnnámskeið sem félagið heldur í samstarfi við SFR. það verður haldið tvisvar sinnum nú í nóvember þ.e. dagana 11. - 13. nóvember  skrá mig og  25.-27. nóvember  skrá mig.

Fræðslufundur stuðningsfulltrúa í grunnskólum

Minnum á Fræðslufund stuðningsfulltrúa í kvöld 3. nóvember kl. 20. Guðlaug María Bjarnadóttir leikari og framhaldsskólakennari flytur erindi sem hún kallar ,,Að líða vel með sjálfum sér” Fyrirlestur um sjálfstyrkingu.

Ráðgjafi á Akranesi

Búið er að ganga frá samningi milli Starfsendurhæfingarsjóðs og stéttarfélaga á Akranesi um starf ráðgjafa.  Ráðgjafinn mun veita einstaklingum á Akranesi þjónustu ef um er að ræða skerta starfsgetu vegna heilsubrests.  Björg Bjarnadóttir hefur verið ráðin sem ráðgjafi og mun bjóða félagsmönnum allra stéttarfélaga þjónustu á sviði starfsendurhæfingar. Sjá nánar

Félag stuðningsfulltrúa

Félag stuðningsfulltrúa í grunnskólum í Reykjavík og Akranesi hefur opnað síðu hér á heimasíðu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar þar sem stuðningsfulltrúar geta fengið helstu upplýsingar um félagstarfið. Það er von stjórnar félagsins að þetta framtak megi auka samstarf meðal stuðningsfulltrúa.

Kynningarfundir

Kynning á samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum verða haldnir mánudaginn 10. ágúst kl. 16:15 að Grettisgötu 89, 1. hæð og 11. ágúst á Akranesi á Suðurgötu 62. Einnig er hægt að kynna sér samningana hér á heimasíðu félagsins. Atkvæðagreiðsla um samkomulagið fer fram á netinu með rafrænum hætti og hefst 22. júlí
kl. 9.00 og lýkur 13. ágúst kl. 16.00.

Viðræður við Launanefnd sveitarfélaga

Félagið á í viðræðum við Launanefnd sveitarfélaga um framlengingu og breytingar á kjarasamningum vegna félagsmanna á Akranesi ásamt öðrum félögum innan BSRB og fulltrúum frá Starfsgreinasambandinu.

Samið við Launanefnd Sveitarfélaga

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í 5. júlí og samningurinn við ríkið s.l.  föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum, 1. júlí, 1. nóvember og 1. júní 2010.

Lífeyrissjóðurinn flytur

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga ásamt þeim sjóðum sem þeir hafa umsjón með svo sem Lifeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóði starfsmanna Akraneskaupstaðar, flutti í vikunni í nýtt húsnæði við Sigtún 42, 2. hæð, við hliðina á Ásmundarsafni.

Hugmyndahópur félagsmanna

Hér geta félagmenn komið á framfæri hugmyndum sínum varðandi viðæður á vinnumarkaði um stöðugleikasáttmála. Formaður félagsins, Garðar Hilmarsson er einn af fulltrúum stéttarfélaganna í þessum þríhliða viðræðum milli ríkisstjórnarinnar, verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda. Hann mun nýta sér allar góðar hugmyndir frá félagsmönnum inn í viðræðurnar.

Laus orlofshús

Eigum til laus orlofshús 29. maí til 5. júní að Munaðarnesi og Úlfljótsvatni. Einnig eru Akrakot og Norðurás laus á þessum tíma. Athugið um vikuleigu er að ræða. Fyrstir panta fyrstir fá. Vinsamlega hringið á skrifstofuna frá 09:00-16:00 sími: 525-8330

Kórstarf BSRB kórsins frestast fram á haust

Vegna almennra anna félagsmanna og væntanlegra vorverka hefur verið ákveðið að fresta kórstarfi fram á haust. Þeir sem hafa áhuga á að syngja með kórnum í haust eru beðnir um að skrifa Sólveigu á skrifstofu SFR solveig@sfr.is eða Guðmundi Garðari gumgar@simnet.is

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga LSS

Verður miðvikudaginn 13. maí 2009, kl. 10:30 í fundarsal á 1. hæð að Grettisgötu 89. Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins og önnur mál löglega upp borin. Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM, KÍ og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.

Samtakamátturinn skiptir máli

Á þessum viðsjárverðu tímum skiptir máli að standa saman. 1. maí er alþjóðlegur baráttudagur launafólks og á þeim degi sameinast menn og konur um heim allan í kröfunni um betra samfélag og réttlátari skiptingu auðsins. Almenn velmegun og framfarir í samfélaginu hafa byggst á samstöðu. Láttu ekki þitt eftir liggja mættu í kröfugönguna og baráttufund 1. maí.

Kór BSRB

Eins og glöggir menn og konur muna þá var nýlega stofnaður BSRB kór, opinn öllum félagsmönnum aðildarfélaganna. Kóræfingar munu verða á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 en vegna sumardagsins fyrsta og fleiri slíkra frídaga var ákveðið að skella upp aukaæfingu á þriðjudagskvöldið næsta, 28. apríl, kl. 20:00. Allir söngelskir í BSRB eru hvattir til að mæta.

Söngelsk í BSRB sameinumst!

Ákveðið hefur verið að stofna kór BSRB félaga. Um verður að ræða blandaðan kór (konur og karlar) og stjórnandi verður Svava Kristín Ingólfsdóttir. Fyrsta æfing nýja kórsins verður fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00, Grettisgötu 89, 1. hæð.

Aðalfundur stuðningsfulltrúa í grunnskólum

Mánudaginn 23. mars verður aðalfundur stuðningsfulltrúa í grunnskólum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 89, 1 hæð kl. 17. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um stöðuna og starfið í umræðuhópum. Boðið upp á kaffi og meðlæti.

Opinn fundur

Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

AÐALFUNDUR

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 17 að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Aðalfundur er opinn öllum félagsmönnum og eru þeir hvattir til þess að mæta. Á dagskrá fundar eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13 gr. laga og önnur mál.

Dregið út í verðlaunakrossgátu Fréttabréfsins

Dregið hefur verið út í verðlaunakrossgátu Fréttabréfsins. Sigurvegari að þessu sinni er: Jóhann Björn Björnsson, starfsmaður í Árbæjarlaug og óskum við honum til hamingju með það.

Stafganga - kakó og Halldór

Stafgönguhópi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR er boðið upp á kakó og leiðsögn frá stafgönguleiðbeinandanum Halldóri í Laugardalnum mánudaginn 16. febrúar nk. milli kl. 18-19. Allir sem hafa tekið þátt í stafgöngunámskeiðunum síðastliðin ár er hvattir til þess að mæta klukkan 18 við skautahöllina í Laugardalnum.

Uppstilling til stjórnar St.Rv.


Uppstillingarnefnd hefur nú lokið störfum og stillt upp til stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Verið er að senda út á vinnustaðina auglýsingu um uppstillinguna. Frestur til mótframboðs er til kl. 16 mánudaginn 9. febrúar.

Breytingar á yfirvinnu hjá Reykjavíkurborg

Vegna ákvarðana Reykjavíkurborgar um uppsögn á yfirvinnu hefur Garðar Hilmarson formaður St.Rv. sent borgarstjóra, mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar, fulltrúum og trúnaðarmönnum félagsins eftirfarandi bréf.

Ályktun stjórnarfundar

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi  Starfsmannafélags Reykjavíkuborgar 21. janúar 2009. Þar gagnrýnir hún harðlega áform Reykjavíkurborgar um að segja upp yfirvinnu sem bundin er í fastlauna- og ráðningarsamningum.

Jafnréttisþing 16. janúar

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.

 

Fulltrúaráðsfundur

Næsti fundur fulltrúa og trúnaðarmanna í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar verður haldinn 8. janúar 2009, kl. 13:00. Á þeim fundi er skipað í Uppstillingarnefnd fyrir stjórnarkjör í félaginu.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English