Vegna ákvarðana Reykjavíkurborgar um uppsögn á yfirvinnu hefur Garðar Hilmarson formaður St.Rv. sent borgarstjóra, mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar, fulltrúum og trúnaðarmönnum félagsins eftirfarandi bréf.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Starfsmannafélags Reykjavíkuborgar 21. janúar 2009. Þar gagnrýnir hún harðlega áform Reykjavíkurborgar um að segja upp yfirvinnu sem bundin er í fastlauna- og ráðningarsamningum.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.
Næsti fundur fulltrúa og trúnaðarmanna í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar verður haldinn 8. janúar 2009, kl. 13:00. Á þeim fundi er skipað í Uppstillingarnefnd fyrir stjórnarkjör í félaginu.