Hér geta félagmenn komið á framfæri hugmyndum sínum varðandi viðæður á vinnumarkaði um stöðugleikasáttmála. Formaður félagsins, Garðar Hilmarsson er einn af fulltrúum stéttarfélaganna í þessum þríhliða viðræðum milli ríkisstjórnarinnar, verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda. Hann mun nýta sér allar góðar hugmyndir frá félagsmönnum inn í viðræðurnar.
Eigum til laus orlofshús 29. maí til 5. júní að Munaðarnesi og Úlfljótsvatni. Einnig eru Akrakot og Norðurás laus á þessum tíma. Athugið um vikuleigu er að ræða. Fyrstir panta fyrstir fá. Vinsamlega hringið á skrifstofuna frá 09:00-16:00 sími: 525-8330
Vegna almennra anna félagsmanna og væntanlegra vorverka hefur verið ákveðið að fresta kórstarfi fram á haust. Þeir sem hafa áhuga á að syngja með kórnum í haust eru beðnir um að skrifa Sólveigu á skrifstofu SFR solveig@sfr.is eða Guðmundi Garðari gumgar@simnet.is
Verður miðvikudaginn 13. maí 2009, kl. 10:30 í fundarsal á 1. hæð að Grettisgötu 89. Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins og önnur mál löglega upp borin. Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM, KÍ og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.