Kynning á samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum verða haldnir mánudaginn 10. ágúst kl. 16:15 að Grettisgötu 89, 1. hæð og 11. ágúst á Akranesi á Suðurgötu 62. Einnig er hægt að kynna sér samningana hér á heimasíðu félagsins. Atkvæðagreiðsla um samkomulagið fer fram á netinu með rafrænum hætti og hefst 22. júlí
kl. 9.00 og lýkur 13. ágúst kl. 16.00.
Félagið á í viðræðum við Launanefnd sveitarfélaga um framlengingu og breytingar á kjarasamningum vegna félagsmanna á Akranesi ásamt öðrum félögum innan BSRB og fulltrúum frá Starfsgreinasambandinu.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í 5. júlí og samningurinn við ríkið s.l. föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum, 1. júlí, 1. nóvember og 1. júní 2010.