Þar sem atvinnuleitendum innan félagsins hefur fjölgað töluvert á síðustu misserum hefur verið komið upp upplýsingasíðu fyrir félagsmenn hér á vefnum. Félagið hvetur atvinnuleitendur og þá sem missa vinnu til þess að huga að réttindum sínum og huga að því að skrá sig í stéttarfélag.
Nú gefst félagsmönnum kostur á að koma á framfæri hugmyndum sínum um það hvað samninganefndir félagsins eigi að leggja áherslu á í komandi kjarasamningum.
Fulltrúar og trúnaðarmenn St.Rv. eru boðaðir til fundar miðvikudaginn 8. september kl. 13:30. Gestur fundarins verður Guðrún Pétursdóttir en hún mun kynna fyrir okkur undirbúning fyrir Stjórnlagaþing. Það er von okkar að sem flestir fulltrúar og trúnaðarmenn sjái sér fært að mæta.
Yfirlit yfir laus orlofshús og íbúðir má finna hér. Þá viljum við vekja athygli á ýmsum orlofsmöguleikum s.s. flugávísanir, veiðikort og útilegukort. Eddu og Fosshótels afsláttaávísanir og fleira. Nánari upplýsingar má finna undir orlofstengli.
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga svo og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Félagið býður félagsmönnum sínum að kaupa Veiðikortið og útilegukort á skrifstofu félagsins. Veiðikortið kostar 4.000 og Útilegukortið 8.000 kr. fyrir félagsmenn. Sjá nánari upplýsingar undir orlofsmál.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar heldur opinn fulltrúaráðsfund miðvikudaginn 19. maí kl. 16 að Grettisgötu 89, 1. hæð þar sem frambjóðendur til borgarstjórnar verða með stutta kynningu og félagsmenn eiga svo kost á að koma með spuningar til frambjóðenda.
Orlofsuppbót er 25. 800. kr- og greidd út 1. júní ár hvert hjá eftirfarandi viðsemjendum: Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað, Fjármálaráðuneytinu, OR, Strætó bs og Faxaflóahöfnum.
Félagið býður félagsmönnum sínum að kaupa Veiðikortið á skrifstofu félagsins. Kortið kostar 4.000 fyrir félagsmenn. Veiðikortið er nýlunda hjá félaginu en hefur verið afar vinsælt hjá áhugafólki um veiði undanfarin ár. Nánari upplýsingar um veiðistaði og fleira má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku.
Rífandi gangur hefur verið í umsóknum í orlofshús og í búðir sem félagið leigir út þetta sumar. Umsóknarfrestur rennur út á föstudaginn 9. apríl því ættu þeir sem hafa hug á að sækja um að drífa í því.
Fimmtudaginn 25. mars kl. 12- 12:50 verður Kristján Ketill Stefánsson kennari í HÍ með fyrirlestur á 1. hæð í BSRB húsinu fyrir félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og SFR. Þar fjallar hann um virkni og líðan unglinga í skólum.
Verður haldinn mánudaginn 8. mars næstkomandi að Grettisgötu 89, 1. hæð. Húsið verður opnað klukkan 18:30 og boðið verður upp á súpu og brauð svo mun fundur hefjast klukkan 19 með venjubundnum aðalfundarstörfum. Aðalfundur er opinn öllum félagsmönnum.
Umsóknir í orlofshús og íbúðir um páskana eru núna í gangi. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Félagið er með 8 orlofshús í Munaðarnesi sem er í Borgarfirði, 10 hús við Úlfljótsvatn, tvö hús að Eiðum, stök hús í Svínadal, Biskupstungum og Grímsnesi og svo eru tvær íbúðir á Akureyri.
Fyrirlestur Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar „Andleg sjálfsvörn" sem frestað var sl. fimmtudag vegna EM í handknattleik verður í dag, fimmtudag, 4. febrúar kl. 16 að Grettisgötu 89 1. hæð . Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur.
Framvegis- miðstöð um símenntun hefur nú gefið út bækling með spennandi námsframboði á vorönn. Framvegis er nú flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði í Skeifunni 11 b. Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér þau námstilboð sem Framvegis býður upp á. sjá bækling
Miðvikudaginn 20. janúar funda stjórn St.Rv. og fyrsti fulltrúi hverrar deildar innan félagsins. Á fundinum verða tilkynntar tilnefningar í nefndir, farið yfir hlutverk fyrstu fulltrúa og starfið í deildum innan félagsins.