Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Upplestur á aðventu

Í síðustu viku komu Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Víðis Jónsdóttir og lásu upp úr bókum sínum fyrir félagsmenn á aðventukvöldi sem Menningar- og skemmtinefndir St.Rv. og  SFR stóðu fyrir. Boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Upplestur miðvikudaginn 30.11

Nú er að koma að því menningar- og skemmtinefndir St.Rv. og SFR standa fyrir aðventukvöldi 30. nóvember nk. kl. 20 að Grettisgötu 89, 1 hæð þar sem lesið verður upp úr tveimur nýjum bókum. Boðið verður upp á smákökur og heitt súkkulaði. Sigríður Víðis Jónsdóttir og Jón Kalman Stefánsson koma og lesa upp úr bókum sínum.

Orlofsvefur

Á orlofsvef okkar er hægt að sjá hvort orlofshús séu laus, panta og greiða.  

Einnig er hægt að kaupa flugávísanir og hótelmiða ofl. sem við bjóðum upp á og gengið frá greiðslum beint á netinu.

Hægt er að komast á orlofsvef með því að smella hér.

Nýr kjarasamningur kynntur

Miðvikudaginn 8. júní kl. 18 verður nýr kjarasamningur við Reykjavíkurborg kynntur félagsmönnum. Kynningin fer fram að Grettisgötu 89, 1. hæð. 
Á næstu dögum verður félagsmönnum send helstu atriðið úr kjarasamningi í pósti, ásamt aðgangorði, til þess að greiða atkvæði um samninginn á netinu.

Kynningu á samning má finna hér.  Samninginn í heild má finna hér.

Frestur til þess að sækja um orlofshús

Frestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir félagsins fyrir sumarið er til og með föstudeginum 15. apríl.  Hvetju félagsmenn til þess að fara inn á nýja orlofsvefinn og sækja um.

Ályktun aðalfundar St.Rv.

Miklar launa- og kjaraskerðingar, sem auknar hafa verið með leyndum og ljósum gjaldtökum hins opinbera og verðhækkunum eru komnar út yfir þolmörk einstaklinga og fjölskyldna hvort sem er hjá opinberum starfmönnum eða starfsmönnum á almennum vinnumarkaði. Launamenn neita að taka svo þungan hluta...

Akstursgjald breytist

Akstursgjald félagsmanna í St.Rv. er ákvarðað út frá útreikningum ferða- kostnaðarnefndar ríkisins. Gjaldið breytist nú frá 1. apríl., síðasta breyting var í október 2010.

Starfsmenn Frístundaheimila

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar boðar til fundar fyrir starfsmenn frístundaheimila hjá ÍTR á miðvikudaginn 30. mars kl. 18 að Grettisgötu 89, 1 hæð. Oddný Sturludóttir og Eva Einarsdóttir, verða frummælendur og sitja fyrir svörum. Hvetju starfsmenn til að mæta!

Opinn fundur um Icesave í BSRB húsinu

BSRB stendur fyrir opnum fundi um Icesave í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 24. mars klukkan 16.30. Frummælendur á fundinum verða lögfræðingarnir Jóhannes Karl Sveinsson, sem sat í samninganefnd um Icesave, og Reimar Pétursson, sem er einn þeirra sem kvatt hafa til þess að lögin um Icesave verði felld. Fundurinn er öllum opinn.

Launkönnun að ljúka

Frestur til að skila inn spurningalistanum fyrir launakönnun er 18. mars. Miklu skiptir að sem flestir svari, þannig eykst áreiðanleiki og gæði könnunarinnar. Þeir sem ekki hafa fengið könnunina senda í tölvupósti eða inn um póstlúguna og eru í 50% starfi eða meira er bent á að senda póst á jakobina@strv.bsrb.is eða tala við Jakobínu í síma 525-8330.

Fundur fyrir félagsmenn í grunnskólum

Mánudaginn 14. mars kl. 17 verður haldinn fundur á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar að Grettisgötu 89, 1. hæð. Gestir á fundinum verða þau, Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs, Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri og Valgerður Janusdóttir starfsmannastjóri Menntasviðs. Félagsmenn í grunnskólum Reykjavíkur eru hvattir til þess að mæta á fundinn.

Upplýsingafundur með atvinnuleitendum í St.Rv og .SFR

St.Rv. og SFR halda sameiginlega upplýsingafund fyrir atvinnuleitendur í félögunum 27. janúar kl. 10-12. Á fundinum verður fjallað um réttindi atvinnuleitenda innan félaganna og hvaða fræðsla býðst. Fundurinn verður að Grettisgötu 89, 1. hæð.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English