Beint á leiðarkerfi vefsins

Á döfinni

Stofnun ársins - myndir

Niðurstöður könnunarinnar um Stofnun ársins voru kynntar við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica síðastliðinn föstudag. Vinningshafar stilltu sér upp fyrir myndatöku, en hér má líta nokkrar myndir frá hátíðinni.

Opnað fyrir leigu á orlofshúsum

Nú hefur verið opnað fyrir leigu á orlofshúsum og íbúðum félagsins á þeim tíma sem ekki leigðust í úthlutun sumarsins.  Allir félagsmenn geta nú leigt þau hús sem eru laus  í sumar og gildir hér reglan fyrstur kemur fyrstur fær. http://orlof.is/strv/  

Umsóknarfrestur liðinn

Nú er umsóknarfrestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir félagsins fyrir stumarið liðinn. Úthlutun fer fram strax eftir páska og verður félagsmönnum sendur póstur um niðurstöður. Starfsmenn skrifstofu félagsins óska félagsmönnum gleðilegara páska.  

Umsóknarfrestur til 1. apríl

Félagsmenn eiga að hafa fengið fréttbréf félagsins þar sem orlofshús og íbúðir eru kynntar. Við viljum minn á að umsóknarfestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir félagsins er til 1. apríl næstkomandi. Niðurstöður úthlutunar munu liggja fyrir eftir páska. sækja um

Umsóknarfrestur til 1. apríl

Félagsmenn eiga að hafa fengið fréttblað félagsins þar sem orlofshús og íbúðir eru kynntar. Við viljum minn á að umsóknarfestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir félagsins er til 1. apríl næstkomandi. Niðurstöður úthlutunar munu liggja fyrir eftir páska. sækja um

Launakönnun frestur framlengdur

Nú fer fram launakönnun félagsins sem Capacent sér um framkvæmd á. Frestur til þess að skila könnun hefur verið framlengdur til þriðjudagsins 20. mars. Við hvetjum félagsmenn til þess að taka þátt, það hjálpar okkur í baráttunni fyrir bættum kjörum.

Aðalfundur

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn í gær, miðvikudaginn 7. mars. Garðar Hilmarsson formaður fór yfir helstu atriði úr skýrslu stjórnar sem lá frammi fyrir fundinum og hafði verið send öllum félagsmönnum í Fréttabréfi félagsins.

Minnum á orlofsvef

Við minnum félagsmenn á orlofsvefinn okkar en þar er hægt að panta sér orlofshús utan orlofstíma og páska. Einnig er hægt að kaupa svokölluð gjafabréf í flug, hótelmiða og veiðikort.

sjá nánar

Eingreiðsla 1. febrúar

Í tengslum við flesta viðsemjendur St.Rv. er kveðið á um eingreiðslu í kjara- samningi sem greiða á út 1. febrúar. Greiðslan er 25.000 kr til starfsmanna sem eru við störf 1. febrúar 2012 m.v. fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfalls- lega miðað við starfshlutfall 1. feb. 2012 (á ekki við ríki og OR). Launatöflur hækka svo 1. mars hjá öllum okkar viðsemjendum, nema hjá OR sem hækkuðu 1. febrúar.

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English