Sjöfn Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og varaformaður BSRB sagði í dag við undirritun samkomulags sem náðst hefur við Reykjavíkurborg um viðbótarframlag borgarinnar í lífeyrissjóði starfsmanna hennar, að þetta væri mikilvægur og langþráður áfangi.
Félagsmálaskóli alþýðu og Háskólinn á Akureyri hafa í sameiningu mótað nám á háskólastigi fyrir stjórnarmenn, starfsmenn og trúnaðarmenn verkalýðsfélaga. Námið nær yfir fjórar annir og er mótað með það fyrir augum að það sé hægt að stunda með vinnu. Samningur milli aðila var undirritaður í dag.
Vinna fer fram við nýjan vef
Í kjarasamningum ofangreindra aðila var samið um að taka upp nýtt starfsmatskerfi og leiðrétta starfslaun í áföngum á samningstímabilinu. Samhliða þessari launakerfisbreytingu var ákveðið að taka upp nýtt hæfnislaunakerfi í stað eldra kerfis.