Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

21.12.2005

Viðræður í gangi

Viðræður við Strætó bs, Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafnir eru í fullum gangi og af endurnýjuðum krafti nú eftir að kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg hefur verið samþykktur og er sá samningur auðvitað lagður til grundvallar af hálfu félagsins í viðræðunum. Viðræður þessar hafa gengið vel í öllum tilfellum og

20.12.2005

Jólaball

Starfsmannafélag Reykjavíkubrorgar og SFR- stéttarfélag í almannaþjónustu halda sameiginlegt jólaball, fimmtudaginn 29. desember 2005 kl. 16.00 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga Klass sér um að halda uppi fjörinu. Dansað verður í kring um jólatré og jólasveinar koma í heimsókn. Boðið verður upp á veitingar. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89,  3 hæð frá og með 19. desember n.k. Miðaverð er kr. 500

16.12.2005

Kjarasamningur samþykktur

Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu um kjarasamning St.Rv. við Reykjavíkurborg liggur nú fyrir. Á kjörskrá voru 2525 manns. Atkvæði greiddu 1025 eða 40% félagsmanna. Samþykkir samningnum voru yfirgnæfandi eða 967 eða 94% þáttakanda. Ósamþykkir samningnum voru 37 eða 5% greiddra atkvæða. Auðir og ógildir voru 7.

12.12.2005

Kosning um kjarasamninginn

Nú eru félagsmenn, starfandi hjá Reykjavíkurborg væntanlega búnir að fá senda í pósti kynning á nýgerðum kjarasamningi við Reykjavíkurborg ásamt kjörseðli. Félagsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í kosningunni.

9.12.2005

Kynningafundur í tónabæ

Á mánudaginn 12 desember verður kynningarfundur á nýundirrituðum kjarasamningi í Tónabæ sérstaklega auglýst fyrir þá starfsmenn sem ekki komust á fyrri fundi.

7.12.2005

Kynningar og kosning um kjarasamning

Nú er kynning á nýgerðum kjarasamningi í fullum gangi. Hófst kynningin á fundi með Fulltrúaráði og trúnaðarmönnum á Grand hotel í gær, 6. desember,  í dag 7. des. var kynning í ráðhúsi Reykjavíkur, á morgun miðvikudaginn 8. des. verður kynningarfundur á Grettisgötu 89, 4 hæð, félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á kynningafundi eða kynna sér kjarasamninginn. Hér fylgir með úrdráttur með helstu ákvæði í kjarasamningi.

5.12.2005

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg undirritaður

Skrifað var undir kjarasamninga  St.Rv. við Reykjavíkurborg nokkru fyrir miðnætti í gærkvöld, sunnudaginn 4. desember í húsakynnum Ríkissáttasemjara.  

Nú verður hafist handa við að kynna samninginn fyrir félagsmönnum og undirbúa skriflega allsherjaratkvæðagreiðslu sem fer þannig fram að félagsmenn munu fá send kjörgögn í pósti ásamt upplýsingum um helstu breytingar og nýjungar, sem í kjarasamningnum felast.

Rétt er að taka fram, að viðtal það sem birtist í Morgunblaðinu í gær sunnudag, var tekið við formann félagsins s.l. föstudagsmorgun, en samninganefnd félagsins hafði þá tekið sér hlé frá viðræðum vegna dræmra undirtekta samninganefndar borgarinnar við kröfum okkar.  Eftir þetta hlé voru viðræður teknar upp á ný og fóru þá hlutirnir að ganga betur. Og nú hafa sem sagt  samningar náðst sem samninganefnd félagsins leggur á næstu dögum undir dóm félagsmanna.  Kjarasamningur í heild

 

28.11.2005

Gangur í samningamálum

Hinn 23. þ.m. lagði samninganefnd St.Rv. svar við tilboði borgarinnar um nýjan kjarasamning. Samninganefndin lagði mikla vinnu og metnað í gagntilboðið og hefur hagfræðingur BSRB, Hildigunnur Ólafsdóttir unnið með nefndinni og lagt okkur til útreikninga á einstökum kostnaðarþáttum og tilboðinu í heild. Við fórum ennfremur mjög nákvæmlega yfir gildandi samning og bárum saman við tilboð borgarinnar  sem gerði ráð fyrir all miklum breytingum á einstökum greinum og ákvæðum sem og uppröðun og kaflaskiptingu í heild sinni.

24.11.2005

Samningaviðræður við Reykjavíkurborga

Kjarasamningsviðræður við Reykjavíkurborg eru í fullum gangi.

Síðasti fundur var miðvikudaginn 23. nóvember þar sem samninganefnd St.Rv. svaraði fyrsta tilboði Reykjavíkurborgar og væntum við þess að funda fljótlega aftur.

24.11.2005

Hæfnislaun b í framkvæmd

Samkomulag var gert milli St.Rv. og Reykjavíkurborgar 12. október sl. um framkvæmd á greiðslu hæfnislauna b. samkv. núgildandi kjarasamningi.

Framkvæmdin er á ábyrgð sviðsstjóra á hverju sviði fyrir sig og við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér málið á meðfylgjandi vefslóð og hjá yfirmönnum á vinnustöðum http://www.rvk.is/default.asp?cat_id=1847

 

16.11.2005

Ögmundur svarar fyrir opinbera starfsmenn

Ögmundur Jónasson formaður BSRB svarar Ingimundi Sigurpálssyni á heimsíðu sinni og segir ömurlegt að þurfa að hlusta á talsmann hálaunahópanna í þjóðfélaginu traktera láglauna- og militekjuhópa með þessum hætti.

15.11.2005

Erindi flytur David Hall um afleiðingar einkavæðingar á vatnsveitur

David Hall, prófessor við háskólann í Greenwich í Englandi, heldur erindi um rannsóknir á afleiðingum einkavæðingar á vatnsveitum. Fyrirlesturinn verður  kl. 09:00 til 10:30 að Hótel Loftleiðum föstudaginn 18. nóvember nk.

15.11.2005

Kjarasamningaviðræður í fullum gangi

Eins og félagsmönnum má vera kunnugt standa nú yfir viðræður við Reykjavíkurborg og Strætó bs. um nýjan kjarasamning. Í byrjun október lagði samninganefnd félagsins fram  meginkröfur félagsins þar sem fyrst og fremst er lögð áhersla á verulega hækkun launa  og fulltrúar borgarinnar kynntu okkur á sama fundi helstu markmið Reykjavíkurborgar.

14.11.2005

Vatn fyrir alla -auglýsingaherferð

Þau samtök sem stóðu að ráðstefnunni Vatn fyrir alla eru nú að undirbúa auglýsingaherferð til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna. Frá því að ráðstefnan var haldin hefur Ungmennafélag Íslands bæst í hóp þeirra samtaka sem undirritað hafa yfirlýsinguna og von er á að fleiri samtök geri það.

Auglýsingaherferðin stendur yfir 14. - 20 nóvember og verða sett upp auglýsingaspjöld á götustöndum og í strætisvagnaskýli. Auk þess verða auglýsingar í útvarpi og minni veggspjöldum dreift, m.a. því sem hér sést.

Breski fræðimaðurinn David Hall mun síðan flytja erindi á vegum BSRB í tengslum við Aðalfund bandalagsins föstudagsmorguninn 18. nóvember kl. 09.00 á Hótel Loftleiðum. Sá fundur er öllum opinn og er aðgangur ókeypis og mun erindið verða túlkað. David Hall veitir forstöðu rannsóknardeild við Greenwich háskólann í London sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á almannaþjónustu og stoðkerfum samfélagsins víða um heim. David Hall mun tala um einkavæðingu á vatni, þróunina og afleiðingar þess. Fyrirlesturinn er í tengslum við aðalfund BSRB.

27.10.2005

Ráðstefnan Vatn fyrir alla

Ráðstefna um vatn verður haldin laugardaginn 29. október á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, og hefst kl. 13. Ráðstefnan er haldin til að efla lýðræðislega umræðu um vatn sem er takmörkuð auðlind og almannagæði - undirstaða alls lífs og heilbrigðis. Mörg áhugaverð erindi verða um vatn í lögum, vatn sem auðlind, réttindi til vatns og fleira. Í lokin eru pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmála-flokkanna munu fjalla um framtíðarsýn á vatn. Ráðstefnan hefst kl. 13 og eru allir velkomnir! Enginn aðgangseyrir.

17.10.2005

Konur höfum hátt

Baráttuhátíð verður haldin þann 24. október næstkomandi í tilefni af því að þá verða þrjátíu ár liðin frá kvennafrídeginum árið 1975. Heildarsamtök launafólks (ASÍ, BHM, BSRB, KÍ) og mörg kvennasamtök standa saman að undirbúningi og framkvæmd dagsins. Kröfuganga verður farin frá Skólavörðuholti að Ingólfstorgi og er mæting í hana klukkan 15.00. Yfirskrift göngunnar er “Konur höfum hátt”. Baráttufundur verður síðan á Ingólfstorgi klukkan 16:00 með stuttum hvatningaræðum og menningardagskrá.

Sjá sameiginlega fréttatilkynningu frá heildarsamtökum launafólks, ASÍ, BSRB, BHM, KÍ.

6.10.2005

Taktu þátt – það er þinn hagur

Kosningar í fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í október 2005
Félagsmenn eru hvattir til þess að bjóða sig fram sem fulltrúa í fulltrúaráð St.Rv. Fulltrúi er jafnframt  trúnaðarmaður á vinnustað.
Kosning í fulltrúaráð fer fram í október, mikilvægt er að félagsmenn taki þátt.
Kjörstjóri deildarinnar mun auglýsa eftir framboðum og jafnframt tilkynna þá daga sem kosning fer fram.

 

6.10.2005

Viðhorfskönnun til félagsmanna

Nú er farin í gang viðhorfskönnun á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Markmiðið með þessari könnun er að skoða hug félagsmanna í tengslum við komandi kjarasamnninga.

 

6.10.2005

Samningaviðræður að hefjast

Fyrsti formlegi fundur samninganefndar félagsins og Reykjavíkurborgar var haldinn í gær miðvikudaginn 5. október. Lögðu samningsaðilar fram áhersluatriði sín varðandi komandi kjarasamninga og ræddu þau. Ákveðin var vinnutilhögun í viðræðunum.

28.9.2005

Nýr vefur opnaður hjá Fræðslusetrinu starfsmennt

Geir H. Haarde fjármálaráðherra opnaði nýjan þjónustu- og gagnagrunnsvef Fræðslusetursins  Starfsmenntar á Listasafni Íslands í gær. Verkið var unnið af Íslenskum fyrirtækjum og er verulegur ávinningur af nýju kerfi sem kemur fram í því að vinnuálag við umsjón námskeiða snarminnkar. SFR er aðili að setrinu en það þjónar starfsmönnum og stofnunum ríkisins.

27.9.2005

Enskunámskeið BSRB að hefjast

Nú fer að nálgast að námskeið í Ensku I hefjist. Á þessu námskeiði, sem er 30 stundir, verður lögð áhersla á notagildi námsins og talmál.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 17-19:30 á tímabilinu frá  3. til 26 október.

22.9.2005

Afsláttur fyrir félagsmenn á Kabarett

Leikhópurinn Á senunni býður félagsmönnum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar 10% afslátt á miðaverði á sýninguna Kabarett í Íslensku óperunni dagana 1., 8., 15. eða 22. október.  Almennt miðaverð er 3900 eða 5900 krónur. Einnig býðst hópurinn til að semja við Café Sólon um veitingar fyrir hópa fyrir sýningu og í hléi á vægu verði.  Kabarett er sjöunda verkefni hópsins og hefur verið á teikniborðinu í nokkur ár.  Eiginlegur undirbúningur hefur staðið frá síðasta sumri. 

16.9.2005

Afturvirkar launahækkanir vegna starfsmats og áhrif þeirra á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði

BSRB hefur undanfarið fengið fyrirspurnir  varðandi rétt starfsmanna til að fá afturvirka leiðréttingu úr Fæðingarorlofssjóði vegna greiðslna úr starfsmati. M.ö.o hvort að útreikningur sem notaður var til grundvallar þegar starfsmaður fór í fæðingarorlof verði leiðréttur til hækkunar vegna starfsmatsins, þrátt fyrir að viðkomandi starfsmaður hafi verið búinn í fæðingarorlofi þegar leiðrétting á launum kom til framkvæmda.

16.9.2005

Kjarasamningaviðræður að hefjast

Samninganefnd félagsins hefur hafið störf fyrir all nokkru. Þar er á ferð vörpulegur og samstæður hópur sem er staðráðinn í að standa saman um að fylgja eftir þeim kröfum sem fram verða settar. Endanlegar kröfur eða útfærslur þar um liggja ekki fyrir á þessari stundu en umræðan er öll á einn veg ljúka verður endanlegu uppgjöri gildandi kjarasamnings og hækka þarf grunnlaun svo um munar. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur nýverið sett fram hugmyndir um að flýta skuli gerð kjarasamninga við starfsmenn borgarinnar.

14.9.2005

Samnninganefnd fundar reglulega

Samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur fundað reglulega frá því í ágúst eftir hlé í sumar. Nefndina skipa eftirtaldir; frá stjórn Sjöfn Ingólfsdóttir formaður, Jakobína Þórðardóttir varaformaður og Garða Hilmarsson, varamenn frá stjórn eru Guðrún Árnadóttir, Jónas Engilbertsson og Pétur Frantzson. Úr 1. deild Filippus Jóhannsson, til vara Garðar Jóhannsson. Úr 3. deild Þórdís Björk Sigurgestsdóttir.  4. deild.  Sigríður Þórisdóttir og til vara Anna Árnadóttir,

14.9.2005

Viðræðuáætlun undirrituð

á Mánudaginn 12. september undurrituðu, fulltrúar úr samninganefndum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar, viðræðuáætlun. Stefnt er að því að hefja viðræður í næstu viku.

7.9.2005

Ályktun stjórnar og fulltrúaráðs

Ályktun frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
Fundir í fulltrúaráði St.Rv. 30. ágúst og fundur stjórnar St.Rv. 7.september samþykkja eftirfarandi ályktun:
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna lágra launa og mikils vinnuálags hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar. Á sumum vinnustöðum hefur auk manneklu verið óviðunandi álag á starfsfólki vegna stórtækra skipulags- og stjórnkerfisbreytinga að undanförnu. Þrátt fyrir viðleitni til að jafna kynbundinn launamun hjá Reykjavíkurborg hafa borgaryfirvöld sýnt lítinn

2.9.2005

Lág laun og mannekla

Á fulltrúaráðsfundi 30. ágúst sl. varð mikil umræða um kjaramál eins og gefur að skilja þar sem kjarasamningar eru lausir nú í lok nóvember. Auk þess að fulltrúar ræddu lág laun og að ekki hefur enn verið staðið við alla þætti kjarasamningsins, þ.e. hæfnislaun b. Þá var mikil óánægja með það álag sem væri á vinnustöðum í kjölfar breytinga, flutninga og vegna mikillar manneklu. Segja fulltrúar þetta algjörlega óviðunandi ástand.

1.9.2005

Samninganefnd fundar

Fundur var haldinn í dag 1. sept. í samninganefnd félagsins. Rædd voru m.a. drög að tillögu okkar að viðræðuáætlun sem ber að gera fyrir 15. september, en kjarasamningar eru lausir 30 nóvember n.k. við m.a. Reykjavíkurborg, Strætó bs., Faxaflóahafnir og Orkuveitu Reykjavíkur.

30.8.2005

Fulltrúaráð fundar í dag

Í dag 30. ágúst kl. 13 er boðað til fyrsta fundar vetrarins í Fulltrúaráði félagsins. Áætlað er að halda fund aftur í sepember, en það verður síðasti fundur núverandi Fulltrúaráðs en kjörtímabili þess lýkur í október.

15.8.2005

Þeim fjölgar sem greiða í séreignarsparnað

Hátt í helmingur launþega greiddi í séreignarsparnað tekjuárið 2004. Þá hafði þeim fjölgað um rúm 8% frá árinu áður. Þetta kemur fram í fréttabréfi fjármálaráðuneytisins. Þessar tölur byggja á upplýsingum Ríkisskattstjóra um álagningu á einstaklinga árið 2005.

4.7.2005

Brúum bilið -byggjum upp almannaþjónustu

Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók í dag við ályktun stjórnar BSRB þar sem stjórnvöld og almenningur eru hvattur til að taka virkan þátt í að brúa þá gjá sem er á milli ríkra og snauðra. Það voru Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Sjöfn Ingólfsdóttir og Jens Andrésson varaformenn bandalagsins sem afhentu utanríkisráðherra ályktunina. Sjá einnig meira www.bsrb.is

 

24.6.2005

Framkvæmdarstjóri PSI á fundi hjá BSRB

Á fjölmennum fundi BSRB í gær flutti  Hans Engelberts framkvæmdastjóra PSI erindi þar sem hann ræddi helstu baráttumál Alþjóðasamtaka starfsfólks í almannaþjónustu og hvernig baráttan fyrir bættri almannaþjónustu tengist baráttunni gegn fátækt, fyrir réttinum til að vera í verkalýðsfélagi og fyrir jafnrétti í heiminum. Sjá nánari umfjöllun um fundinn á heimasíðu BSRB www.bsrb.is

 

20.6.2005

Miðar í Hvalfjarðargöngin

Hægt er að kaupa staka miða í Hvalfjarðargöngin á skrifstofu félagsins. Miðarnir eru seldir á 40% afslætti eins og veittur er ef keyptir eru 10 miða í einu hjá Speli. Hver miði kostar 600 krónur.  

3.6.2005

Nýtt Fréttabréf

Nú er komið út 3. tölublað Fréttabréfs félagsins. Umfjöllunarefni þess er meðal annars þær breytingar sem eru að verða á stjórnskipulagi Reykjavíkurborgar. Birna Stefánsdóttir starfsmaður félagsins til rúmlega 30 ára kveður og segir frá félagsstarfinu  á árum áður. 

 

2.6.2005

Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi 11. júní

Árleg Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi verður haldin laugardaginn 11. júní. Á hátíðinni verður opnuð myndlistarsýning Önnu Hrefnudóttur. Skagfirska söngsveitin mun syngja og Þorsteinn frá Hamri lesa upp.

31.5.2005

Ennþá laus orlofshús

Félagsmenn eru hvattir til þess að hafa samband við skrifstofu félagsins til þess að fá upplýsingar um laus orlofshús í sumar.

 

6.5.2005

Edduhótel um allt land

Eins og undanfarin sumur verða niðurgreiddir miðar á Edduhótelunum fyrir félagsmenn. Verð á gistinóttu er 4000 kr. Miðarnir verða seldir á skrifstofu Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Grettisgötu 89, 3. hæð,  frá og með 2. maí og gilda fyrir tveggja manna herbergi með handlaug. Sé óskað eftir herbergi með baði verður að greiða aukalega fyrir það.

2.5.2005

Hátíðarhöld á 1. maí

1. maí hátíðahöld fóru fram í Reykjavík á hefðbundinn hátt. Formaður BSRB Ögmundur Jónasson hélt ávarp á Ingólfstorgi, ásamt varaformanni Eflingar Þórunni Sveinbörnsdóttur. Dagurinn var að þessu sinni haldinn undir slagorðunum Sami réttur fyrir alla.

 

 

29.4.2005

Fjölmennum á baráttufundi 1. maí

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hvetur félagsmenn til að fjölmenna í kröfugöngur og á baráttufundi 1. maí. Krafan um sama rétt fyrir alla er kjörorð dagsins.  Það verður safnast saman í Reykjavík framan við Hallgrímskirkju kl. 13, en gangan leggur af stað kl. 13.30.

29.4.2005

Sami réttur fyrir alla

1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og INSÍ

Stéttarfélög hafa sjaldan haft mikilvægara hlutverki að gegna en í dag né hafa verkefni þeirra verið umfangsmeiri. Ef litið er til þeirra þjóðfélagslegu breytinga sem átt hafa sér stað á síðustu árum, þá verður þetta vaxandi hlutverk stéttarfélaga ljóst: Alheimsvæðingin, aukin markaðsvæðing, samfara stórefldum styrk fjármagnseigenda þar sem valdið hleðst sífellt á færri hendur um leið og það teygir sig út fyrir mörk og íhlutunarrétt þjóðríkja.

25.4.2005

Hið gullna jafnvægi

Á heimasíðu verkefnisins "Hið gullna jafnvægi" eru ýmsar forvitnilegar upplýsingar um samræmingu vinnu og einkalífs, aukins sveigjanleika í starfsumhverfinu, meiri starfsánægju og um það að styrkja fyrirtækin í samfélagi sem einkennist af örum breytingum á vinnumarkaði. Verkefnið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Gallup. Félagsmenn eru hvattir til þess að kíkja á síðuna www.hgj.is

19.4.2005

Samninganefnd fundar

Samninganefnd St.Rv. við Reykjavíkurborg fundar. Nú er samninganefndin komin í fullann gang með undirbúningsvinnu fyrir samninga sem verða lausir við Reykjavíkurborg 31. nóvember nk.  

7.4.2005

Borgarstjóri á Fulltrúaráðsfundi

Á fulltrúaráðsfundi í dag, fimmtudaginn 7. apríl var aðalefni fundarinns stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Á hann mættu Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Helga Jónsdóttir, Birgir Björn Sigurjónsson, Ragnar Þorsteinsson, Eiríkur Hjálmarsson og Ágúst Hrafnkelsson.

7.4.2005

Áhrif Gatts á bókasöfn

Einar Ólafsson starfsmaður á Borgarbókasafni og fyrsti fulltrúi fyrir 13. deild St.Rv. sótti ráðstefnuna „Trading in knowledge? The World Trade Organisation and Libraries“ sem haldin var í Cambridge í Englandi Dagana 2.-3. mars sl. Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um áhrif GATS samningsins á þjónustu bókasafna þeirra landa sem hafa opnað á  þjónustuflokkinn bóka- og skjalasöfn, safnastofnanir og önnur menningarþjónusta, en Ísland er eitt þeirra landa.
Greinargerð Einars um ráðstefnuna fylgir hér á eftir.

4.4.2005

Kjarasamningur við ríkið samþykktur af félagsmönnum

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning St.Rv. við fjármálaráðherra f.h. Ríkissjóðs

Gildistími 1. febrúar 2005 - 30. apríl 2008.

Talning atkvæða fór fram á skrifstofu félagsins 4. apríl 2005.

31.3.2005

Fundur með borgarstjóra um stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjvíkurborg

Formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Sjöfn Ingólfsdóttir, og formaður BSRB, Ögmundur Jónasson, óskuðu eftir fundi með borgarstjóra til að ræða áhyggjur starfsmanna vegna fyrirhugaðra breytinga á bókhaldsþjónustu og launavinnslu á stofnunum borgarinnar.

13.3.2005

Samningar við ríkið í höfn

Nýr kjarasamningur var undirritaður við samninganefnd ríkisins laugardaginn 12. mars. Hann nær til félagsmanna St.Rv. sem starfa á Landspítala háskólasjúkrahúsi.

10.3.2005

Aðalfundur

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn laugardaginn 5. mars. s.l. samkvæmt hefðbuninni dagskrá aðalfundar. Skýrsla stjórnar hafði verið send öllum félagsmönnum, auk helstu niðurstaðna í ársreikningi. Þrír nýjir stjórnarmenn tóku sæti í stjórninni, þau Þóra Sigurðardóttir sem starfar á Fasteignastofu, Jón Ingi Hilmarsson  á Landspítala háskólasjúkrahúsi og Ragnhildur Helgadóttir sem starfar hjá Íþrótta- og tómstundasviði.

7.3.2005

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

Opinn fundur þriðjudaginn 8.mars 2005 kl.17 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur Ísland í alþjóðasamfélagi. Fundarstjóri: Elna Katrín Jónsdóttir, varaform. K.Í. Kvennakór Garðabæjar syngur undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur. Þorbjörg Inga Jónsdóttir form. KRFÍ Kvennaárið 2005. Steinunn Þóra Árnadóttir, háskólanemi  Tveir mínusar gera plús - Fatlaðar konur eru ekki fórnar-lömb. Erna Guðmundsdóttir, lögfr.  Áhrif GATS á íslenska verkalýðs-hreyfingu. Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarm. og náttúruverndari  "Fótgöngu-liðar". Hjördís Guðbjörnsdóttir, hjúkrunarfr. Þróunaraðstoð eða stríðs-rekstur?  Birna Þórðardóttir rappar Bússaþulu. Rósa Erlingsdóttir form.UNIFEM  Peking áætlun og Þúsaldarmarkmið. Sabine Leskopf, Samtök kvenna af erl. uppruna  Það er ekkert að óttast.  María S. Gunnarsdóttir, form. MFÍK Friður og framtíðin. 

1.3.2005

Nýtt Fréttabréf

Nú er komið út og á leið til félagsmanna Fréttabréf félagsins með ársskýrslu stjórnar. Í Fréttabréfinu eru einnig kynnt þau orlofshús sem félagsmönnum stendur til boða næsta sumar og meðfylgjandi er umsóknareyðublað í orlofshús og íbúðir.

25.2.2005

Aðalfundur

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn laugardaginn 5. mars næstkomandi kl. 13.00 að Grettisgötu 89, 4 hæð. Dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr. félagslaga. Reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár liggja frammi á skrifstofu þess á Grettisgötu 89 síðustu dagana fyrir aðalfund.

17.2.2005

Foreldrar langveikra barna fá greiðslur í allt að þrjá mánuði

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að foreldrar langveikra barna fái greiðslur í allt að þrjá mánuði vegna tekjutaps. Sama á við um foreldra barna sem greinast með alvarlega fötlun. Greiðslan nemur 90.000 kr. á mánuði og koma greiðslurnar til framkvæmda í áföngum á þremur árum. Þannig verður greitt fyrir einn mánuð í ár, tvo mánuði næsta ár og þrjá mánuði á þriðja ári.

14.2.2005

Fréttabréf komið út

Fréttabréfið fjallar að mestu leyti um starfsmatið. Rætt er við félagsmenn, verkefisstjóra starfsmatsins og fulltrúa félagsins í starfsmatsnefnd.

31.1.2005

Námskeið fyrir félagsmenn "Gott að vita"

Á vorönn býður Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar í samvinnu við SFR upp á  fjölbreytt námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn sína.

31.1.2005

Áfangar í réttindamálum

BSRB, BHM og KÍ undirrituðu 22.desember sl. samkomulag við Reykjavíkurborg,ríki, og launanefnd sveitarfélaga um ýmis réttindamál.

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English