Baráttuhátíð verður haldin þann 24. október næstkomandi í tilefni af því að þá verða þrjátíu ár liðin frá kvennafrídeginum árið 1975. Heildarsamtök launafólks (ASÍ, BHM, BSRB, KÍ) og mörg kvennasamtök standa saman að undirbúningi og framkvæmd dagsins. Kröfuganga verður farin frá Skólavörðuholti að Ingólfstorgi og er mæting í hana klukkan 15.00. Yfirskrift göngunnar er “Konur höfum hátt”. Baráttufundur verður síðan á Ingólfstorgi klukkan 16:00 með stuttum hvatningaræðum og menningardagskrá.
Sjá sameiginlega fréttatilkynningu frá heildarsamtökum launafólks, ASÍ, BSRB, BHM, KÍ.
Kosningar í fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í október 2005
Félagsmenn eru hvattir til þess að bjóða sig fram sem fulltrúa í fulltrúaráð St.Rv. Fulltrúi er jafnframt trúnaðarmaður á vinnustað.
Kosning í fulltrúaráð fer fram í október, mikilvægt er að félagsmenn taki þátt.
Kjörstjóri deildarinnar mun auglýsa eftir framboðum og jafnframt tilkynna þá daga sem kosning fer fram.
Nú er farin í gang viðhorfskönnun á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Markmiðið með þessari könnun er að skoða hug félagsmanna í tengslum við komandi kjarasamnninga.
Fyrsti formlegi fundur samninganefndar félagsins og Reykjavíkurborgar var haldinn í gær miðvikudaginn 5. október. Lögðu samningsaðilar fram áhersluatriði sín varðandi komandi kjarasamninga og ræddu þau. Ákveðin var vinnutilhögun í viðræðunum.