Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.11.2005

Gangur í samningamálum

Hinn 23. þ.m. lagði samninganefnd St.Rv. svar við tilboði borgarinnar um nýjan kjarasamning. Samninganefndin lagði mikla vinnu og metnað í gagntilboðið og hefur hagfræðingur BSRB, Hildigunnur Ólafsdóttir unnið með nefndinni og lagt okkur til útreikninga á einstökum kostnaðarþáttum og tilboðinu í heild. Við fórum ennfremur mjög nákvæmlega yfir gildandi samning og bárum saman við tilboð borgarinnar  sem gerði ráð fyrir all miklum breytingum á einstökum greinum og ákvæðum sem og uppröðun og kaflaskiptingu í heild sinni.

24.11.2005

Samningaviðræður við Reykjavíkurborga

Kjarasamningsviðræður við Reykjavíkurborg eru í fullum gangi.

Síðasti fundur var miðvikudaginn 23. nóvember þar sem samninganefnd St.Rv. svaraði fyrsta tilboði Reykjavíkurborgar og væntum við þess að funda fljótlega aftur.

24.11.2005

Hæfnislaun b í framkvæmd

Samkomulag var gert milli St.Rv. og Reykjavíkurborgar 12. október sl. um framkvæmd á greiðslu hæfnislauna b. samkv. núgildandi kjarasamningi.

Framkvæmdin er á ábyrgð sviðsstjóra á hverju sviði fyrir sig og við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér málið á meðfylgjandi vefslóð og hjá yfirmönnum á vinnustöðum http://www.rvk.is/default.asp?cat_id=1847

 

16.11.2005

Ögmundur svarar fyrir opinbera starfsmenn

Ögmundur Jónasson formaður BSRB svarar Ingimundi Sigurpálssyni á heimsíðu sinni og segir ömurlegt að þurfa að hlusta á talsmann hálaunahópanna í þjóðfélaginu traktera láglauna- og militekjuhópa með þessum hætti.

15.11.2005

Erindi flytur David Hall um afleiðingar einkavæðingar á vatnsveitur

David Hall, prófessor við háskólann í Greenwich í Englandi, heldur erindi um rannsóknir á afleiðingum einkavæðingar á vatnsveitum. Fyrirlesturinn verður  kl. 09:00 til 10:30 að Hótel Loftleiðum föstudaginn 18. nóvember nk.

15.11.2005

Kjarasamningaviðræður í fullum gangi

Eins og félagsmönnum má vera kunnugt standa nú yfir viðræður við Reykjavíkurborg og Strætó bs. um nýjan kjarasamning. Í byrjun október lagði samninganefnd félagsins fram  meginkröfur félagsins þar sem fyrst og fremst er lögð áhersla á verulega hækkun launa  og fulltrúar borgarinnar kynntu okkur á sama fundi helstu markmið Reykjavíkurborgar.

14.11.2005

Vatn fyrir alla -auglýsingaherferð

Þau samtök sem stóðu að ráðstefnunni Vatn fyrir alla eru nú að undirbúa auglýsingaherferð til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna. Frá því að ráðstefnan var haldin hefur Ungmennafélag Íslands bæst í hóp þeirra samtaka sem undirritað hafa yfirlýsinguna og von er á að fleiri samtök geri það.

Auglýsingaherferðin stendur yfir 14. - 20 nóvember og verða sett upp auglýsingaspjöld á götustöndum og í strætisvagnaskýli. Auk þess verða auglýsingar í útvarpi og minni veggspjöldum dreift, m.a. því sem hér sést.

Breski fræðimaðurinn David Hall mun síðan flytja erindi á vegum BSRB í tengslum við Aðalfund bandalagsins föstudagsmorguninn 18. nóvember kl. 09.00 á Hótel Loftleiðum. Sá fundur er öllum opinn og er aðgangur ókeypis og mun erindið verða túlkað. David Hall veitir forstöðu rannsóknardeild við Greenwich háskólann í London sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á almannaþjónustu og stoðkerfum samfélagsins víða um heim. David Hall mun tala um einkavæðingu á vatni, þróunina og afleiðingar þess. Fyrirlesturinn er í tengslum við aðalfund BSRB.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English