Formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Sjöfn Ingólfsdóttir, og formaður BSRB, Ögmundur Jónasson, óskuðu eftir fundi með borgarstjóra til að ræða áhyggjur starfsmanna vegna fyrirhugaðra breytinga á bókhaldsþjónustu og launavinnslu á stofnunum borgarinnar.
Nýr kjarasamningur var undirritaður við samninganefnd ríkisins laugardaginn 12. mars. Hann nær til félagsmanna St.Rv. sem starfa á Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn laugardaginn 5. mars. s.l. samkvæmt hefðbuninni dagskrá aðalfundar. Skýrsla stjórnar hafði verið send öllum félagsmönnum, auk helstu niðurstaðna í ársreikningi. Þrír nýjir stjórnarmenn tóku sæti í stjórninni, þau Þóra Sigurðardóttir sem starfar á Fasteignastofu, Jón Ingi Hilmarsson á Landspítala háskólasjúkrahúsi og Ragnhildur Helgadóttir sem starfar hjá Íþrótta- og tómstundasviði.
Nú er komið út og á leið til félagsmanna Fréttabréf félagsins með ársskýrslu stjórnar. Í Fréttabréfinu eru einnig kynnt þau orlofshús sem félagsmönnum stendur til boða næsta sumar og meðfylgjandi er umsóknareyðublað í orlofshús og íbúðir.