|
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hvetur félagsmenn til að fjölmenna í kröfugöngur og á baráttufundi 1. maí. Krafan um sama rétt fyrir alla er kjörorð dagsins. Það verður safnast saman í Reykjavík framan við Hallgrímskirkju kl. 13, en gangan leggur af stað kl. 13.30. |
Á heimasíðu verkefnisins "Hið gullna jafnvægi" eru ýmsar forvitnilegar upplýsingar um samræmingu vinnu og einkalífs, aukins sveigjanleika í starfsumhverfinu, meiri starfsánægju og um það að styrkja fyrirtækin í samfélagi sem einkennist af örum breytingum á vinnumarkaði. Verkefnið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Gallup. Félagsmenn eru hvattir til þess að kíkja á síðuna www.hgj.is
Samninganefnd St.Rv. við Reykjavíkurborg fundar. Nú er samninganefndin komin í fullann gang með undirbúningsvinnu fyrir samninga sem verða lausir við Reykjavíkurborg 31. nóvember nk.
Á fulltrúaráðsfundi í dag, fimmtudaginn 7. apríl var aðalefni fundarinns stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Á hann mættu Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Helga Jónsdóttir, Birgir Björn Sigurjónsson, Ragnar Þorsteinsson, Eiríkur Hjálmarsson og Ágúst Hrafnkelsson.
Einar Ólafsson starfsmaður á Borgarbókasafni og fyrsti fulltrúi fyrir 13. deild St.Rv. sótti ráðstefnuna „Trading in knowledge? The World Trade Organisation and Libraries“ sem haldin var í Cambridge í Englandi Dagana 2.-3. mars sl. Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um áhrif GATS samningsins á þjónustu bókasafna þeirra landa sem hafa opnað á þjónustuflokkinn bóka- og skjalasöfn, safnastofnanir og önnur menningarþjónusta, en Ísland er eitt þeirra landa.
Greinargerð Einars um ráðstefnuna fylgir hér á eftir.
|
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning St.Rv. við fjármálaráðherra f.h. Ríkissjóðs | ||||||
|
Gildistími 1. febrúar 2005 - 30. apríl 2008. |
||||||
|
Talning atkvæða fór fram á skrifstofu félagsins 4. apríl 2005. | ||||||