Félagsmenn eru hvattir til þess að hafa samband við skrifstofu félagsins til þess að fá upplýsingar um laus orlofshús í sumar.
![]()
Eins og undanfarin sumur verða niðurgreiddir miðar á Edduhótelunum fyrir félagsmenn. Verð á gistinóttu er 4000 kr. Miðarnir verða seldir á skrifstofu Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Grettisgötu 89, 3. hæð, frá og með 2. maí og gilda fyrir tveggja manna herbergi með handlaug. Sé óskað eftir herbergi með baði verður að greiða aukalega fyrir það.
1. maí hátíðahöld fóru fram í Reykjavík á hefðbundinn hátt. Formaður BSRB Ögmundur Jónasson hélt ávarp á Ingólfstorgi, ásamt varaformanni Eflingar Þórunni Sveinbörnsdóttur. Dagurinn var að þessu sinni haldinn undir slagorðunum Sami réttur fyrir alla.