Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

25.10.2006

BSRB þing 25.- 27. okt.

41. þing BSRB verður haldið dagana 25. til 27. október á Grand Hóteli í Reykjavík. Þingsetning er kl. 13.00 miðvikudaginn 25. október. Þing BSRB eru haldin þriðja hvert ár. Á þinginu er stefna bandalagsins til næstu þriggja ára mótuð en þingfulltrúar eru um 220 talsins. Þá er kosið í framkvæmdanefnd BSRB en hana skipa formaður, tveir varaformenn, gjaldkeri og ritari.

20.10.2006

Vinnuverndarvikan í ár tileinkuð ungu fólki

Í tilefni vinnuverndarvikunnar, sem stendur yfir 23. - 27. október, stóðu SFR og St.Rv. sameiginlega fyrir hádegisverðarfróðleik í dag. Ása G. Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri vinnuverndarvikunnar, kynnti markmið og viðburði vikunnar ásamt því að fjalla um mál sem sérstaklega þarf að hafa í huga varðandi ungt fólk á vinnumarkaði. 

20.10.2006

Stefán Ólafsson með erindi á fulltrúaráðsfundi

Á fulltrúaráðsfundi 18. október sl. flutti dr.Stefán Ólafsson, erindi undir heitinu skattar og og lífskjör almennings.  Þar fór hann yfir hvernig skattbyrði þeirra tekjulægstu í þjóðfélaginu hefur aukist til muna á árunum frá 1995-2004 meðan skattbyrði tekjuhæsta hópsins hefur lækkað töluvert. Auk þess að skýra að sú kaupmáttaraukning sem hefur verið hafi komið í mun stærra hlutfalli til tekjuhæsta hópsins í samfélaginu. Fram kom að í samanburði við önnur Evrópuríki frá árunum 2003-2004, ríki  fjórði mesti tekjuójöfnuðurinn á Íslandi, en á árum áður var ísland í hópi þeirra landa sem ójöfnuðirinn var hvað minnstur.

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English