Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

18.12.2006

Hátíðarfundur

hatid3
Nýstofnaður kór borgarstarfsmanna

Í tilefni síðasta fulltrúaráðsfundar St.Rv. á áttatíu ára afmælisári félagsins var haldin sérstök hátíðardagskrá 14. desember síðastliðinn. Boðið var upp á glæsilegt jólahlaðborð og fulltrúaráðsmeðlimir fengu jólagjafir frá félaginu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, ávörpuðu samkomuna. Nýstofnaður kór borgarstarfsmanna, Borgarkórinn, flutti jólalög við góðar undirtektir og ekki síður söngkonan Magga Stína sem söng sig inn í hug og hjörtu viðstaddra með flutningi á lögum meistara Megasar.

12.12.2006

Jólaball

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélag í almannaþjónustu halda sameiginlegt jólaball föstudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu.

Hljómsveitin Saga Klass sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kring um jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að  Grettisgötu 89, 3ju hæð frá og með 18. desember. Miðaverð er 500 kr.

jolamynd

3.12.2006

Auka aðalfundur St.Rv.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar boðar til auka aðalfundar þriðjudaginn 5. desember 2006, kl. 20.30, að Grettisgötu 89, 1.hæð. Fundurinn er haldinn í tilefni þess að Starfsmannafélag Akraness hyggst sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar í upphafi næsta árs.

3.12.2006

Atkvæðagreiðsla um sameiningu á Akranesi

Félagar í Starfsmannafélagi Akraness greiddu atkvæði um hvort félagið ætti að sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Atkvæðagreiðslan fór fram dagana 30. nóv. og 1. des. sl. Á kjörskrá voru 319. Atkvæði greiddu 130 eða 40% félagsmanna.  Niðurstaða atkvæðagreiðslu var að JÁ sögðu 116 eða 89%,  NEI sögðu 12 eða 10,8%, 2 seðlar voru auðir.  Auka aðalfundur hefur verið boðaður hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar á þriðjudaginn 5. desember þar sem það þarf að breyta lögum félagsins þannig að Starfsmannafélagi Akraness geti sameinast St.Rv. 1. janúar 2007.  




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English