Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.2.2006

Vöktun tölvupósts

Fasteignamat ríkisins (FMR) tók á síðasta ári upp eigin reglur varðandi reglur og leiðbeiningar um öryggi í upplýsingatækni. Þar áskilur Fasteignamatið sér m.a. rétt til að skrá notkun á internetinu í þeim tilgangi að fylgjast með að reglum þessum sé fylgt og til að tryggja sem hagkvæmasta notkun netsins auk þess sem allur tölvupóstur sem sendur er í póstkerfi stofnunarinnar sé eign hennar og henni heimilt að skoða hann. Eftir ósk SFR fór BSRB yfir þessar reglur með tilliti til reglna um persónuvernd starfsmanna. Þá sendi BSRB erindi til Persónuverndar vegna þessara reglna og nú hefur Persónuvernd sent Fasteignamatinu leiðbeiningar þar sem bent er á að ýmislegt í þessum reglum þurfi að lagfæra.

9.2.2006

Gott að vita -námskeið fyrir félagsmenn

Fullt af nýjum áhugaverðum námskeiðum eru í boði nú á vorönninni undir yfirskriftinni Gott að vita. Þar má nefna fyrirlestur um launajafnrétti 7. mars nk. og um Vatnið í náttúru Íslands sem haldinn verður á alþjóðlega vatnadeginum, 22. mars nk.

Eflaust eru margir farnir að velta vöngum yfir komandi sumarfríi og er nú í fyrsta sinn boðið upp á vinnustofu um skipulagningu sumarfrísins. 

Við höldum áfram að bjóða upp á námskeið eins og Hvort ég get? Ekki málið - Sjálfsímynd og samskipti  og hin sívinsælu ljósmyndanámskeið.

 

9.2.2006

Kjarasamningur undirritaður og samþykktur

Kjarasamningur hefur verið undirritaður við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. desember 2005 til 30. nóvember 2008. Kjarasamningurinn var kynntur á fundi í á þriðjudaginn 7. febrúar og samþykktur með öllum atkvæðum.

2.2.2006

Garðar Hilmarsson næsti formaður St.Rv.

Ekkert mótframboð barst við tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs en framboðsfrestur rann út 1. febrúar sl. Það er því ljóst að eftirtaldir skipa nýja stjórn starfsmannafélags Reykjavíkurborgar frá 4. mars nk.  Garðar Hilmarsson formaður, aðrir í stjórn verða Guðríður Sigurbjörnsd., Guðrún Árnadóttir, Hallgerður Inga Gestsd., Jakobína Þórðard. og Jónas Engilbertsson.  




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English