|
Starfsmannafélag Akranes leitaði til Starfsmannfélags Reykjavíkurborgar með þá hugmynd að félögin tvö mundu sameinast. Ekki hafa farið fram viðræður um málið nema í stjórn hjá St.Rv. en aðalfundur St.Ak. hefur veitt stjórn St.Ak. umboð til þess að hefja viðræður við stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um hugsanlega sameiningu félaganna. Tillaga þar að lútandi var samþykkt á framhalds aðalfundi félagsins 22. maí sl. en á fundinn mætti Jakobína Þórðardóttir varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og kynnti starfsemi félagsins og sat fyrir svörum. |
Það eru nokkur orlofshús laus á næstu vikum. Sérstaklega á það við um Úlfljótsvatn og Munaðarnes. Húsin eru öll með heitum pottum. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 525-8330.
| Hópur fólks, sem láta sig fyrirhugaðar framkvæmdir við Úlfljótsvatn varða hefur opnað bloggsíðu. Nú fer fram skoðanakönnun á afstöðu fólks til framkvæmdanna á síðunni. Haft var samband við félagið og það hvatt til þess að tjá sitt sjónarhorn vegna framkvæmdanna í gestabók síðunnar. http://ulfljotsvatn.blog.is/blog/ulfljotsvatn/ |
![]() |
|
Hljómsveitin Rass með skýr pólitísk skilaboð |
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning félagsins við Orkuveituna lauk um hádegi 16. maí. Niðurstaðan er eftirfarandi: Á kjörskrá voru 217. Atkvæði greiddu 108 eða 49 %. Já sögðu 91 eða 85%. Nei sögðu 15 eða 14.8 %. Auðir/ógildir 2.
| Á mánudaginn 15. maí var undirritaður fyrsti sjálfstæði kjarasamningur félagsins við Orkuveituna. Samningurinn var kynntur starfsmönnum á fundi þriðjudaginn 16. maí og í lok fundar borinn undir atkvæði. |
Í dag voru undirritaðir kjarasamningar við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og við Félagsbústaði hf. Samningar við Félagsbústaði voru bornir undir atkvæði félagsmanna
|
Rokk og pólitík er yfirskrift uppákomu sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gangast fyrir í nýrri félagamiðstöð BSRB á Grettisgötu 89 miðvikudaginn 17. maí næstkomandi. Þar munu troða upp nokkur heitustu rokkböndin í dag og nokkrir þeirra stjórnmálamanna sem eru í eldlínunni í baráttunni fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
|
|
LEB, ASÍ, BSRB, SGS, Samiðn og Öryrkjabandalag Íslands efna til Ráðstefnu um Skatta og Skerðingar 3. maí 2006, kl. 13:00 til 16:00 í Öskju, Náttúrufræðistofnun Háskóla Íslands.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar mun eins og síðustu ár selja miða á Eddu hótelin í sumar á niðurgreiddu verði. Sala miða hefst 1. júní nk. Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu í tveggja manna herbergi með handlaug í eina nótt á 4.200 kr. stk. Ekki er innifalin morgunverður