Nú er stofnanasamningur fyrir stærsta hluta félagsmanna á LSH í höfn.
Endurskoðun stofnanasamninga hefur farið fram, samið um í kjarasamningi að taka upp nýja og breytta launatöflu frá og með 1. maí sl. Í öllum tilvikum er nýr samningur afturvirkur frá 1. maí sl. og sú regla er algild að enginn skuli lækka í dagvinnulaunum við yfirfærsluna. Gengið hefur verið frá vörpun yfir í nýja launatöflu fyrir háskólamenn á sama samningi.
|
Yfir fimmtíu manns sóttu fyrirlestur Jürgens Buxbaum og Alans Leather frá PSI – Alþjóðasamtökum launafólks í almannaþjónustu – sem haldinn var í BSRB húsinu föstudaginn 7. júlí sl. Þeir fjölluðu um opnun vinnumarkaða, í Evrópu og á heimsvísu, og afleiðingum þeirra hræringa sem hún hefði haft í för með sér. |
| Á dögunum fór rúmlega 100 manna hópur eldri félagsmanna í ferð á vegum félagsins norður til Akureyrar. Áhugi á ferðinn var svo mikill þetta árið að bæta þurfti við rútu til þess að allir sem skráðu sig á biðlista kæmust með. Nú höfum við fengið myndir sem Þórdís Sigurðardóttir, ein af skipuleggjendum, tók í ferðinni. |
Ekki ráðum við veðurguðunum. Það sannaðist í gær. Svo mikla þoku gerði þá á Genfarflugvelli að flugumferð þar tafðist með þeim afleiðingum að þeir Alan Leather og Jürgen Buxbaum, sem