Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fagnar þeirri ákvörðun, sem tekin var í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í gær að falla frá þeim umfangsmiklu framkvæmdum sem fyrirhugaðar voru á Úlfljótsvatni. Félagið hefur um árabil haft aðgang að víðfemu svæði fyrir orlofshús félagsins sem stóð til að þrengja verulega að. Sjá einnig yfirlýsingu sem send hefur verið út af hópi fólks sem lætur sig náttúru og lífríki Úlfljótsvatns varða.
Nú nýverið, fór norðurlanda-mót vagnstjóra fram í Helsinki í þrítugasta sinn. Stofnað var til þessarar keppni árið 1976. Tilgangur þessa móts hefur alltaf verið að auka og viðhalda færni og þekkingu vagnstjóra á öku-tækjum sínum, auk þess sem góður félagsskapur hefur myndast í gegnum tíðina og traust vinabönd myndast í áranna rás. Höfuðborgirnar fimm, skiptast á að halda keppnina og skipa sex vagnstjórar hvert lið, sem ekur keppnisbraut sem samanstendur af tíu þrautum sem þarf að leysa |

Frá undirritun samkomulagsins. Frá vinstri: Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands, Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Jóhanna Arnórsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Sölvi Sveinsson skólameistari Verzlunarskólans og Helgi Jóhannsson formaður stjórnar Verzlunarskólans.