Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.10.2007

Athugasemd vegna ályktunar stjórnar BSRB vegna málefna Orkuveitu Reykjavíkur, REI/GGE og Hitaveitu Suðurnesja.

Stjórn BSRB sendir frá sér ályktun um ofangreind málefni og dregur saman á heimasíðu sinni nokkur áhersluatriði úr henni. Þetta er einnig birt á heimasíðu St.Rv. Undirritaður leyfir sér af þessu tilefni að vekja máls á eftirfarandi atriðum

26.10.2007

Stjón BSRB skorar á borgaryfirvöld

Borgaryfirvöld ógildi samninga REI og GGE

Stjórn BSRB skorar á borgaryfirvöld í Reykjavík að ógilda þegar í stað samninga um sameiningu REI og GGE enda ekki rétt að þeim staðið. Auk þess krefst stjórn samtakanna þess að hætt verði við áform um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og kallar eftir breytingum á lögum sem komi í veg fyrir að einkaaðilar eignist náttúruauðlindir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag.

24.10.2007

Breyting á kjarasamningi við Reykjavíkurborg

Á Starfskjaranefndarfundi 22. október var samþykkt breyting á kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar. Samþykktin fjallar um grein 1.3.2. í kjarasamningi og fjallar um mat á starfsaldir hjá Reykjavíkurborg en við bætist í greinina að meta eigi einnig starfstíma starfsmanns sem starfað hefur í sambærilegu starfi á föstu mánaðarkaupi hjá öðru sveitarfélagi eða ríki enda liggi staðfesting fyrri vinnuveitenda fyrir. Þetta ákvæði tekur gildi 1. nóvember 2007. Til skýringar þá fær starfsmaður metinn starfsaldur frá og með næstu mánaðarmótum eftir að hann hefur lagt fram staðfest gögn um starfstíma sinn.

24.10.2007

Tengsl undir- og yfirmanna. Hvað veldur, hver heldur?

Svo nefnist fyrirlestur sem Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir og lektor í Háskóla Íslands heldur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd föstudaginn 26. október kl. 12.15 – 13.15. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 201. 
Haukur Ingi fjallar um svokölluð sálræn forrit sem eru að verki í samskiptum undir- og yfirmanna. Hann ræðir um hvernig eldri reynsla mótar nýja reynslu og hvernig þetta getur bæði skapað vandamál og leitt til heilbrigðari samskipta á vinnustað. Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn öllu áhugafólki um vinnuvernd.

18.10.2007

Kjara- og þjónustukönnun St.Rv.

Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar félagsins á bæði kjörum félagsmanna auk þess sem félagið var að kanna viðhorf til starfssemi félagsins. Sláandi niðurstöður komu fram um kynbundinn launamun í könnuninni en þegar félagið er skoðað í heild er munurinn 16,2% en ef við skoðum félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg er hann 14,9% og eru þetta mun hærri tölur en komu fram í könnun Reykjavíkurborgar frá árinu 2001. Úrtakið úr þeirri könnun voru allir starfsmenn Reykjavíkurborgar en hér eru einungis félagsmenn St.Rv.  Hér finnur þú skýrsluna í heild sinni.

 

17.10.2007

Starfslokanámskeið BSRB

logobsrb

Fræðslunefnd BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði í BSRB húsinu, að Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er í þrjú skipti og verður dagana 6. 7. og 12. nóvember frá kl. 16.30 - kl. 19.00. Vakin er athygli á því að námskeiðið er ætlað   meðal félagsmanna sinna sem eru farnir að nálgast starfslok eða hafa nýlega lokið störfum. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 2. nóvember 2007. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

Með fylgir dagskrá námskeiðsins.

2.10.2007

BSRB fundar með formanni Öryrkjabandalagsins


Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, kom í dag á sameiginlegan fund  réttindanefndar og lífeyrisnefndar BSRB til að fjalla um hugmyndir sem fram hafa komið af hálfu ASÍ og SA um svokallaðan áfallatryggingasjóð og nýtt endurhæfingarkerfi fyrir öryrkja. Formaður Öryrkjabandalagsins sagði á fundinum að hér væri í reynd um að ræða nýtt framfærslukerfi til hliðar við almannatryggingakerfið og varaði við því að ef þessar hugmyndir yrðu að veruleika yrði við lýði í landinu kerfi mismununar. Annars vegar væru þeir sem tengdust þeim hluta vinnumarkaðarins sem aðild ættu að þessu fyrirkomulagi og síðan hinir sem þar stæðu fyrir utan.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English