Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.11.2007

Námstilboð fyrir ritara og skrifstofustjóra í skólum

Námstilboð fyrir ritara og skrifstofustjóra í grunn- og framhaldsskólum er í samvinnu Framvegis og Verslunarskóla Íslands, er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjarnámi í WebCT kerfinu, en skólinn hefur góða reynslu af því og það hefur nýst vel í fullorðinsfræðslu á vegum hans. Námið er einingabært (22 einingar) þannig að þeir sem hyggjast leggja stund á frekara nám geti lagt fram þessar einingar með sér. Gert er ráð fyrir að nýr hópur hefji nám í janúar 2008 með fyrirvara um næga þátttöku.
Námið dreifist á þrjár annir og verður blanda af staðbundnum lotum og fjarnámi.

19.11.2007

Heil og sæl í vinnunni

Heilsueflingarverkefnið Heil og sæl í vinnunni er nú formlega hafið á Íslandi. Verkefnið er unnið í samvinnu við önnur Evrópulönd og ber heitið Move Europe á ensku. Hér á landi hefur Vinnueftirlit ríkisins umsjón með verkefninu sem unnið er í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð.

heil og sæl

Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og forvarnir. Heilsuefling á vinnustöðum er góð fjárfesting í mannauði og skilar ávinningi fyrir vinnustaði jafnt sem starfsmenn. Ávinningur vinnustaða er meðal annars fólginn í minni kostnaði vegna veikinda, fjarvista og slysa ásamt því að framleiðni og nýsköpun eykst. Einnig hefur verið sýnt fram á að heilsuefling getur skilað sér í minni starfsmannaveltu. Ávinningur starfsmanna er hins vegar færri slys og sjúkdómar, bætt heilsa, aukin vellíðan og starfsánægja.

19.11.2007

Krafa um verulegar kjarabætur í komandi samningum

Á aðalfundi BSRB, haldinn föstudaginn 16. nóvember sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB um leið og hann mælti fyrir ályktun fundarins að menn yrðu að opna augu fyrir þeim alvarlega vanda sem blasti við innan almannaþjónustunnar. Víða væri orðið erfitt að manna störf og færi ástandið hríðversnandi. „Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand. Það er á ábyrgð viðsemjenda okkar að semja um stórbætt kjör í komandi kjarasamningum enda sýna kannanir að starfsmenn innan almannaþjónustunnar eru að dragast  verulega aftur úr í launum. Ef starfsfólki innan almannaþjónustunnar verður ekki greitt kaup og búið að því eins og best gerist á launamarkaði horfir þar hreinlega til landauðnar á mikilvægu sviðum velferðarþjónustunnar." Í ályktun BSRB er sett fram krafa um verulegar kjarabætur  auk þess sem lögð er áhersla á að taka verði mið af þörfum fjölskyldunnar þegar samið er um kaup, vinnutíma og önnur kjör.

1.11.2007

Fræðsluvefur um lífeyrismál opnaður

Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er www.gottadvita.is Á heimasíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English