
Jólaball Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR var haldið í gær á Hótel Sögu, Súlnasal og var góður hópur sem skemmti sér konunglega við söng og dans í kring um jólatré. hápunkturinn var auðvita þegar jólasveinarnir heimsóttu samkvæmið.
Reglum um greiðslur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) í fæðingarorlofi var breytt 1. júní sl. Þá var horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir eru jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli. Breytingin varðar foreldra barna sem fæðst hafa eftir 1. júní. Í dag er greiðsla miðað við 100% starf 170 þúsund krónur. Í gildi verður að vera ráðningarsamningur við upphaf fæðingarorlofs. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu sjóðsins http://www.fos.is/
vinnueftirlitið heldur málþing um forvarnir og aðgerðir gegn einelti og kynferðislegri áreitni á vinnustöðum 5.des. nk. á Grand Hóteli. Málþingið hefst með skráningu og morgunverði kl.8:00. Formleg dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl.10.15. Málþingið er ætlað þjónustuaðilum í vinnuvernd, fulltrúum stjórnsýslu, heilbrigðisstarfsfólki, fulltrúum samtaka á vinnumarkaði, stjórnendum og starfsmönnum á vinnustöðum og öðrum sem áhuga hafa á málefninu.