Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

24.2.2007

Úrslit kosninga til stjórnar

Kosningar í stjórn St. Rv. fóru þannig að Ragnhildur Helgadóttir, Þórdís Sigurðardóttir, Þóra Sigurðardóttir, Jón Ingi Hilmarsson og Víglundur Rúnar Jónsson náðu kjöri til næstu tveggja ára í stjórn. Þau hafa öll setið í stjórn áður. En Grétar Bjarnason sem bauð sig fram í fyrsta skipti til stjórnar náði ekki kjöri. Kosningin var þó naum. Kjörsókn var dræm í þessum kosningum.  

20.2.2007

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

Grunnnámskeið fyrir trúnað­armenn í Munaðarnesi dagana 6. og 7. mars. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi þriðjudagsins 6. mars og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 7. mars. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 fyrir 2. mars.

20.2.2007

Fulltrúaráðsfundur

fulltruarad feb 07

Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundaði í dag þriðjudaginn 20. febrúar kl. 13 að Grettisgötu 89. Á fundinn kom Sólveig Jónasdóttir frá Alþjóðahúsi og sagði frá starfssemi alþjóðahúss og fór hún yfir stöðu innfytjendamála á Íslandi og þeim skyldum sem trúnaðarmenn og fulltrúar stéttarfélaga hafa gagnvart erlendum samstarfsmönnum. Auk erindis Sólveigar kynnti stjórn tillögur stjórnar til lagabreytinga á aðalfund félagsins sem verður haldinn 10. mars nk. Garðar Hilmarsson formaður félagsins fjallaði um þau verkefni sem eru í vinnslu og á döfinni hjá félaginu.

16.2.2007

Tilboð í leikhús fyrir félagsmenn

Leikhópurinn Á senunni og Hafnarfjarðarleikhúsið
Abbababb! eftir Dr. Gunna

Leikhópurinn Á senunni býður félögum í starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar tilboð á hinn frábæra og bráðfjöruga fjölskyldusöngleik Abbababb! eftir Dr. Gunna í leikstjórn Maríu Reyndal.  Abbababb! var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu sunnudaginn 11. febrúar við gríðarleg fagnaðarlæti frumsýningargesta.  Meðal leikara eru Jóhann G. Jóhannsson, Sigurjón Kjartansson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Atli Þór Albertsson.

15.2.2007

Kjaramál á Akranesi

Mikil ólga hefur verið hjá félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem starfa hjá Akraneskaupstað því það er skilningur okkar að bókun sú sem samþykkt var í bæjarráði síðastliðið vor innihéldi loforð um að bæjarstjórn Akraness myndi taka upp kjarasamninga sem í gildi eru og færa þá nær þeim kjarasamningi

15.2.2007

Námskeið fyrir félagsmenn af erlendum uppruna

                                                                                                   - Nýtt  

Íslenskt samfélag og menning - námskeið fyrir félagsmenn af erlendum uppruna 
Icelandic society and culture – a course for non-Icelandic members             

Tími:
6., 8. og 13. mars (þri. og fim.) kl. 19:30-22.        Skrá mig /Registration
Lengd: 7 ½  klst.
Staður:
Grettisgötu 89, 1. hæð
Leiðbeinendur: Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og M.A. Renata Peskova Emilsson, tungumálakennari og þýðandi.
Þátttökugjald kr. 1.000.-

Lýsing:
Fjallað verður um hvað einkennir íslenskt samfélag ásamt fróðleiksmolum úr fortíðinni. Af hverju eru Íslendingar eins og þeir eru. Í seinni hlutanum verður komið inn á kjarasamninginn, réttindi og skyldur og hlutverk stéttarfélaga.  Einnig verða lykilstofnanir samfélagsins kynntar.

Descripton: The course will be divided into two parts. One will be concerned with Icelandic society and culture, being Icelandic and surviving in Iceland as a foreigner. The other part will include „bits and pieces" about Iceland with focus on the trade union, rights and duties in the work place, employment contracts and important institutions that help practical orientation in Iceland.

9.2.2007

Stjórnarkjör 2007

Nú er frestur til framboðs til stjórnarkjörs í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar runnin út. Auk þeirra sem uppstillingarnefnd stillti upp þ.e. Jóni Inga Hilmarssyni, Ragnhildi Helgadóttur, Víglundi Rúnari Jónssyni, Þóru Sigurðardóttur og Þórdísi Eygló Sigurðardóttur, hefur Grétar Bjarnasson sem starfar hjá Skipulags- og byggingasviði boðið sig fram. Því mun fara fram kosning til stjórnar St.Rv., þar sem sex frambjóðendur eru í þau fimm sæti sem kosið er um, 22. og 23. febrúar. Kosningin verður auglýst nánar síðar.

6.2.2007

Þökkum góðar viðtökur við kjara- og þjónustukönnun félagsins

Þessa dagana er Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að gera kjara- og þjónustukönnun, á vegum félagsins, meðal félagsmanna þar sem bæði er spurt um þjónustu félagsins og um kjaramál. Markmiðið með slíkri skoðanakönnun er að auka vitneskju um þarfir félagsmanna og að undirbúa okkur undir næstu kjarasamninga. Það verður haft samband við 1500 félagsmenn og þeir beðnir um að svara. Símhringingar til félagsmanna fóru af stað á föstudaginn 2. febrúar og munu halda áfram fram í mánuðinn. 
Félagsmenn hafa tekið vel á móti símnhringingarfólki og verið jákvætt að taka þátt en það er nauðsynlegt til þess að vel megi takast til. Þökkum við félagsmönnum  góðar viðtökur.

6.2.2007

Umsóknir um flugávísanir

Félagsmenn hafa sýnt mikinn áhuga á að sækja um flugávísanir frá Iceland Express. Það er hægt að sækja um fram til 9. mars en 10. mars verða dregnir út þeir félagsmenn sem geta keypt miða á þessum afslætti. Sótt er um á netfangið strv@bsrb.is

 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English