Fjallað var um launamun kynjana á hádegisverðarfundi í dag í húsi BSRB. St.Rv. og SFR voru með sameiginlegann hádegisfróðleik fyrir félagsmenn þar sem Hildigunnur Ólafsdóttir hagfræðingur BSRB fjallaði um baráttuna
Aðalfundur var haldinn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar laugardaginn 10. mars kl. 13. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa og lagabreytinga voru samþykktar þrjár ályktanir sem voru bornar fram af stjórn félagsins.
Íslenski dansflokkurinn býður félagmönnum afsláttartilboð á sýninguna "Í okkar nafni" almennt verð er 2.900 en félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar býðst að kaupa 2 miða á 4000 kr. Sýningar verða út mars. Miðapantanir í síma 568 8000 eða midasala@borgarleikhus.is
Nú fer félagsmönnum að berast Fréttabréf félagsins sem inniheldur, auk ársskýrslu, orlofskosti sem félagið býður upp á þetta sumar. Þau leiðu mistök urðu að upplýsingar um eitt af sumarhúsunum sem félagið leigir þetta sumar féll niður við uppsetningu blaðsins, en það er orlofshúsið Ásar. Hér getið þið fengið upplýsingar um það.
Nú eru síðustu forvöð fyrir félagsmenn að sækja um flugávísanir frá Iceland Express. Það er hægt að sækja um fram til 9. mars en 10. mars verða dregnir út þeir félagsmenn sem geta keypt miða á þessum afslætti. Sótt er um á netfangið strv@bsrb.is
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er á fimmtudaginn 8. mars. Í tilefni þess verður haldinn fundur á Grand Hótel - Hvammi frá kl. 11:45-13 undir heitinu Máttur á milli landa -beislum mannauðinn!
Þeir sem flytja erindi eru Gunhilde Raske, mannfræðingur frá Dannmörku, Sigrún Jóhannesdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Sæunn Stefánsdóttir, formaður innflytjendaráðs. Fundarstjóri: Amal Tamimi frá Alþjóðahúsi.
Í upphafi fundar er borin fram súpa, gratinerað brauð og kaffi. Verð 1.750 kr.
|
Fimmtánhundruð félagsmönnum voru send bréf, vegna kjara- og þjónustukönnunar Starfsmanna-félags Reykjavíkurborgar, í byrjun febrúar sl. Í bréfinu var tilkynnt að þeir hafi verið í úrtaki félagsmanna sem haft verði samband við símleiðis í kjölfarið. Könnunin hefur tekið nokkuð lengri tíma en reiknað var með og er enn verið að hringja í félagsmenn og verður eitthvað áfram. Þannig að við óskum eftir að félagsmenn sem fengu bréf en ekki hefur enn verið haft samband haldi febrúar launaseðli til haga og hvetjum þá til þess að taka þátt þó dráttur hafi orðið á viðtölunum. |