| Þriðjudaginn 15. maí mætti glæsilegur hópur fulltrúa í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar til starfa á starfsdegi. Markmiðið með þessum fundi var að fulltrúar kæmu að því að móta stefnu félagsins til næstu ára. Klukkan 10 mætti Ragna Benidikta Garðarsdóttir frá Félagsvísindastofnun HÍ og kynnti fyrstu niðurstöður Kjara- og þjónustukönnunar |
Hæstiréttur hefur dæmt uppsögn tölvunarfræðingsins Salmann Tamimi ólöglega en Landspítalinn háskólasjúkrahús sagði honum upp vegna skipulagsbreytinga. Áður hafði héraðsdómur dæmt uppsögnina löglega. Salmann Tamimi er félagsmaður í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.
Icelandic for foreigners - Framvegis símennturnarmiðstöð heldur námskeið í íslensku í samvinnu við Alþjóðahús. Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna, eða íslenska 1, 2 og 3. Við hvetjum erlenda félagsmenn til þess að kynna sér málið og bendum á að þeir geti sótt um styrk í starfsmenntasjóð félagsins.
Fundur sem haldinn var sl. laugardag þar sem ungu fólki var boðið að spyrja fulltrúa frá þeim flokkum sem bjóða fram í kosningum í vor. Fundurinn var tekinn upp og sýndur beint en nú er búið að hlaða honum inn á netið, http://straumur.nyherji.is/rvk.asp. Við hvetjum fólk til þess að kíkja á fundinn.