Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.12.2008

Blóðsúthellingunum á Gaza mótmælt

Útifundur til að mótmæla blóðsúthellingunum á Gaza verður haldinn á Lækjartorgi í dag, þriðjudag 30. desember kl. 16. Kröfur dagsins eru: Stöðvið fjöldamorð  Ísraelshers á Gaza. Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael. Meðal ræðumanna er Ögmundur Jónasson formaður BSRB og fundarstjóri er Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. undefined

30.12.2008

Samningur Innheimtustofnunnar sveitarfélaga samþykktur

Kosningu er lokið og atkvæði hafa verið talin, á kjörskrá voru 15  þar af greiddu 14 atkvæði eða 93,3%.

  • Já sögðu 13 eða 93%,
  • nei sögðu 1 eða 7%.
  • Auðir seðlar og ógildir voru engir.

Samningurinn telst því samþykktur af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

23.12.2008

Samningar við Launanefnd sveitarfélaga

Í gær náðust samningar við Launanefnd sveitarfélaga fyrir félagsmenn St.Rv. hjá Slökkviliði og hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga.

Samningarnir eru á sömu nótum og þeir kjarasamningar sem hafa verið gerðir undanfarið. Föst krónutala, 20.300 kr. kemur á launatöflu frá 1.nóvember. Gildistími er til 31. ágúst 2009,  Nánari upplýsingar um kynningafundi og atkvæðagreiðslu er að vænta fljótlega

17.12.2008

Jólasveinn á Úlfsljótsvatn

undefined undefined
Séðst hefur til jólasveinsins Stekkjastaurs á Úlfljótsvatni. Félagsmaður náði að festa hann á filmu. Hann var ansi hress.

16.12.2008

Uppselt á jólaball

Jólaball á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR verður haldið á Hótel Sögu Súlnasal þriðjudaginn 30. desember kl. 16- 18. Hljómsveit hússins mun spila undir dansi. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðar eru til sölu á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3ju hæð. Eða miðapantanir í síma 525-8330. Miðaverð er 600 krónur.

12.12.2008

Atkvæðagreiðsa um kjarasamning við Reykjavíkurborg

Akvæðagreiðslu og talningu atkvæða um framlengingu og breytingar á kjarasamningi milli Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar er lokið. Hér koma niðurstöður úr atkvæðagreiðslu:

Á kjörskrá voru 3.055. Atkvæði greiddu 880 eða 28.81%

  • 825 greiddu atkvæði með samningnum eða 93.8%
  • 49 greiddu atkvæði á móti samningnum eða 5.6%
  • Auðir og ógildir voru 6 eða 0.6%

12.12.2008

Ólöglegt að skerða kjarasamningsbundin kjör

Stjórn BSRB varar við einhliða ákvörðunum stjórnenda fyrirtækja og stofnana um að lækka kjarasamningsbundin laun og skerða kjör til að mæta þverrandi tekjum. Ólöglegt er með öllu að skerða kjarasamningsbundin kjör starfsmanna. Engar almennar ákvarðanir um breytingar á kjörum starfsfólks, þar með talið starfshlutfall, á að taka án vitundar og samráðs við starfsfólk og stéttarfélög þess. Stjórn BSRB ítrekar ályktun aðalfundar BSRB frá 8. desember þar sem segir m.a.:

12.12.2008

Kjarasamningur St.Rv. við Strætó bs.

Kosningu er lokið og atkvæði hafa verið talin, á kjörskrá voru 207, þar af greiddu 48 atkvæði eða 23,2%.

  • Já sögðu 41 eða 85,4%,
  • nei sögðu 7 eða 14,6%.
  • Auðir seðlar og ógildir voru engir.

Samningurinn telst því samþykktur af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

11.12.2008

Kjarasamningur við LN vegna félagsmanna á Akranesi

Kosningu er lokið og atkvæði hafa verið talin, á kjörskrá voru 244, þar af greiddu 64 atkvæði eða 26%.

  • Já sögðu 61 eða 95,3%,
  • nei sögðu 3 eða 4,7%. 
  • Auðir seðlar og ógildir voru engir.

Samningurinn telst því samþykktur af hálfu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

9.12.2008

Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan

Opinn fundur verður á vegum BSRB fimmtudaginn 11. desember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er „Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan.“ Framsögur hafa Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar.

Á fundinum verður fjallað um sérkenni íslenska vinnumarkaðarins og úrræði fyrir þá sem standa frammi fyrir atvinnumissi.
Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir fyrirspurnir úr sal. 

8.12.2008

Kjarasamningur undirritaðir við Strætó bs.

Á sjötta tímanum á föstudag, 5. des. var undirritaður kjarasamningur milli Strætó bs og St.Rv. Samningurinn er á sömu nótum og sá kjarasamningur sem gerður var við Reykjavíkurborg. 20.300 kr. kemur á launatöflu frá 1.nóvember. Gildistími er til 31. ágúst 2009. Nánari upplýsingar um kynningafundi og atkvæðagreiðslu er að vænta fljótlega.

Samninginn má skoða á Word formi hér.

undefined

 

2.12.2008

Kjarasamningur undirritaður við LN vegna félagsmanna á Akranesi

Í dag var undirritaður kjarasamningur við LN vegna félagsmanna á Akranesi. Gildistími samningsins er 1. des. 2008 til 31. ágúst 2009 með fyrirvara, sbr. yfirlýsingu sem fylgir samningnum. Ný launatafla tekur gildi frá.1. desember 2008 og samkvæmt henni hækka launataxtar um 20.300 krónur. Kynningafundur og atkvæðagreiðsla verða mánudaginn 8. des. sjá nánar.

 

 

undefined

1.12.2008

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg var undirritaður á laugardag 29. nóvember. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember til 31. ágúst. Hækkun á launatöflu er 20.300 kr. Samkomulag náðist um yfirlýsingu um að aðilar gengju til þjóðarsáttaviðræðna. Samkomulag í heild sinni  á PDF formi má nálgast hér. 

27.11.2008

Hádegisfyrirlestur fyrir félagsmenn

Fimmtudaginn 4. desember nk. verður hádegisverðarfróðleikur á vegum St.Rv. og SFR þar sem Gunnar Hersveinn heldur erindi sem hann kallar "Gildi samfélagsins og orðspor" og byggir hann á ný útgefinni bók sinni Orðspor - gildin í samfélaginu. Í bókinni fjallar hann um hvernig einstaklingar geta lagt öðrum lið og tekið þátt í því að bæta samfélag sitt. Skráning hér.

25.11.2008

Opinn fundur BSRB -Hvað gerir bankinn fyrir þig?

Hvað gerir bankinn fyrir þig? er yfirskrift opins fundar á vegum BSRB á morgun, miðvikudag, kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum munu fulltrúar viðskiptabankanna kynna úrræði sem þeir bjóða viðskiptavinum sínum upp á til að mæta áföllum heimilanna vegna efnahagsástandsins.

25.11.2008

Menning fyrir félagsmenn

Föstudaginn 28. nóvember kl. 17 verður menningarleg upplyfting fyrir félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Menningar- og skemmtinefnd hefur fengið þrjá rithöfunda til þess að lesa upp úr bókum sínum en þau eru Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason og Kristján Hreinsson. Sjá nánar í auglýsingu.  

24.11.2008

Samstöðufundur á Ingólfstorgi - Verjum velferðina!

BSRB, Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi mánudaginn 24. nóvember nk. kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar undefined

21.11.2008

Líflegur fundur um kosti og galla verðtryggingar

Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður.

21.11.2008

BSRB vill vaxtalækkun og endurskoðun á vísitölugrunni

Stjórn BSRB krefst lækkunar raunvaxta og endurskoðunar á vísitölugrunni auk aðgerða til að aðstoða fólk með vísitölubundin lán í því verðbólguskoti sem spáð er á næstunni. Ályktun stjórnarfundar BSRB fer hér á eftir:

21.11.2008

Stjórn BSRB mótmælir aðför að velferðarþjónustunni

BSRB mótmælir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flatan 10% niðurskurð á velferðarkerfinu og telur það fráleitt á þeim samdráttartímum sem framundan eru. Ályktun stjórnar fer hér á eftir:

21.11.2008

Nám fyrir skólaliða og stuðningsfulltrúa

Borgarholtsskóli býður upp á nám fyrir stuðningsfulltrúa og skólaliða . Einnig býður skólinn upp á Félags- og tómstundanám fyrir starfsmenn sem vinna að tómstundum barna, unglinga og fullorðinna. Um er að ræða nám á svokallaðri brúar leið þar sem starfsreynsla og námskeið eru metin til styttingar á braut.

20.11.2008

Verðtrygging til góðs eða ills?

undefined

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, fimmtudaginn 20. nóvember,  kl. 16:30 – 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um kosti og galla verðtryggingar og hvort æskilegt sé að afnema hana tímabundið eða til langframa. Framsögu hafa Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur og Pétur H. Blöndal alþingismaður.

 

18.11.2008

Staðan á vinnumarkaði og skattleysismörk í Dreifibréfi BSRB

Fjallað er um stöðuna á vinnumarkaði, skattleysismörk og persónuafslátt í Dreifibréfi BSRB sem var að koma út. Atvinnuleysi hefur aukist verulega og má gera ráð fyrir að það aukist enn frekar á næstu mánuðum.

17.11.2008

Kjarasamningur við Faxaflóahafnir samþykktur.

Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Faxaflóahafnir sf. er lokið. Á kjörskrá voru 31 en atkvæði greiddu 21 eða 67,7%.

Já sögðu 20 eða 95,2%, nei sögðu 0 og einn seðill var auður.

17.11.2008

Samningur við Nýja tölvu- og viðskiptaskólann

Undirritaður hefur verið samningur á milli BSRB og Nýja tölvu- og viðskiptaskólan um afsláttakjör fyrir BSRB félaga og sérstök námskeið í Office 2007 tölvuforritum, sem er nýjasta uppfærsla af algengustu forritum fyrir PC-tölvur. Samninginn undirrituðu Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB og Jón Vignir Karlsson skólastjóri NTV.

14.11.2008

Reynsla Færeyinga og Finna

Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu.

13.11.2008

Farsæld í stað hagsældar

Hádegisfyrirlestur var í dag á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR. Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir frá Rannsóknarstofu í vinnuvernd hélt áhugaverðann fyrirlestu undir nafninu Líðan þín í vinnunni á óvissutímum - samstaða á vinnustað. Hér er hægt að nálgast glærur af fyrirlestrinum.

11.11.2008

Fulltrúaráðsfundur ályktar

Á fjölmennum fundi fulltrúaráðs í dag var Ögmundur Jónasson formaður BSRB með erindi um stöðuna í samfélaginu. Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fór yfir stöðuna í kjarasamningsviðræðum félagsins við viðsemjendur. Í lok fundar voru tvær ályktanir samþykktar.

11.11.2008

Opinn fundur BSRB

undefined

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri.  Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri.  Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. auglýsing

10.11.2008

Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun

undefined

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Kristín Völundardóttir sýslumaður á Ísafirði og Hulda Anna Arnljótsdóttir framkvæmdastjóri Starfsmenntar.

Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki skóla og fræðsluaðila vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið var í samvinnu við Sýslumannsembættið. Afhending verðlaunanna fór fram í dag í BSRB húsinu. Samskip fékk verðlaunin í flokki fyrirtækja fyrir metnaðarfullt fræðslustarf. Engin verðlaun voru að þessu sinni veitt í opnum flokki félagasamtaka og einstaklinga.

10.11.2008

Kjarasamningur við Faxaflóahafnir

undefined

Kjarasamningur milli Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna var undirritaður í dag, með fyrirvara um samþykki félagsmanna og stjórn Faxaflóahafna. Ráðgert er að halda kynningafund seinni partinn í þessari viku fyrir félagsmenn á Faxaflóahöfnum og ganga til atkvæða um hann.  

10.11.2008

Stafganga - Alltaf gott veður í Laugardalnum

undefined

Stofnaður verður formlegur gönguhópur sem hittist tvisvar í mánuði til að byrja með, 2. og 4. hvern mánudag kl. 17.30 fyrir framan aðalinngang Skautahallarinnar. Sjáumst 10. nóvember næstkomandi.

3.11.2008

Viðræður við Reykjavíkurborg halda áfram

Eftir nokkuð langt hlé á viðræðum, milli samninganefndar Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, hófust viðræður að nýju. Tveir fundir voru í síðustu viku og verður framhald á þeim viðræðum strax í dag.

22.10.2008

Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd bandalagsins mótmæla

Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd bandalagsins mótmæla harðlega ákvörðun ríkis­stjórnarinnar sem kynnt var í gær að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi sem dagsett hafði verið 7. nóvember næstkomandi.  Í yfirlýsingu frá félags- og tryggingamálaráðuneyti segir að ólíklegt sé „að jafnréttisþingið nái markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar, þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja þar til umræðu eru bundnir við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast þeim aðstæðum sem ríkja á fjármálamarkaði.“

22.10.2008

Kjarasamningsviðræður

Í síðustu viku óskaði samninganefnd Reykjavíkurborgar eftir hléi á samningaviðræðunum við félagið. Reykjavíkurborg hefur fundað síðustu daga með öðrum sveitafélögum um fjárhagsstöðuna og útlitið í efnhags- og atvinnumálum. Mannauðsstjóri, borgarhagfræðingur og fjármálastjóri borgarinnar héldu s.l. mánudag sérstakan fund með fulltrúum heildarsamtaka launþega, m.a. BSRB, til að gera grein fyrir fjárhagsstöðunni og þeim vanda sem blasir við.   Samninganefnd Reykjavíkurborgar er þessa dagana að taka afstöðu til þeirra atriði sem samninganefndir aðila hafa þegar rætt um.  Þá er hún að ljúka við að vinna ítarlega sundurliðuð gögn sem báir aðilar munu nýta við endanlegt kostnaðarmat á þeim kjarasamningi sem nú er verið að semja um.  Áætlað er að samninganefndir hittist strax eftir helgi.  

20.10.2008

Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós

undefined
Aðalfundur BSRB hafnar því að almennt launafólk beri allan herkostnað af bruðli og óhófi undangenginna ára. Þá krefst fundurinn ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir skuldsetningu bankakerfisins og þar með þjóðarinnar. Einnig þarf að upplýsa um hvernig þessum fjármunum hefur verið ráðstafað í einkaþágu gæslumanna fjárins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í dag, 17. október, en ályktunin ber yfirskriftina Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós.

Ályktunin birtist orðrétt hér

14.10.2008

Vinnuverndarstarf á óvissutímum

Vinnueftirlitið og Rannsóknastofa í vinnuvernd sendir frá sér eftirfarandi orðsendingu sem á erindi til allra á vinnumarkaði. Þau efnahagslegu áföll sem nú dynja á íslensku þjóðinni koma við okkur öll og hefur áhrif á líðan okkar. Þær aðstæður sem nú hafa skapast gera að verkum að áhyggjur okkar beinast að mörgum þáttum og áhyggjurnar eru með okkur hvort sem við erum heima eða í vinnunni.

13.10.2008

Deilur hjá Strætó bs settar niður

Unnið er að því að koma samskiptum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og stjórnenda Strætó bs í eðlilegt horf en undanfarið ár hefur einkennst af harðvítugum deilum sem enduðu fyrir dómstólum. Í þann mund sem vitnaleiðslur áttu að hefjast var ákveðið að slíðra sverðin, setjast að samningaborði og leiða málin þannig til lykta.

9.10.2008

Ótímabært að meta tjón lífeyrissjóðanna

Stjórn BSRB hefur fylgst grannt með þróun mála undanfarna daga og haldið tvo stjórnarfundi frá því að ljóst var að íslenskir bankar stæðu frammi fyrir verulegum erfiðleikum sem síðan leiddu til hruns bankakerfisins. Ögmundur Jónasson formaður BSRB segir ljóst að lífeyrissjóðirnir hafi orðið fyrir miklum búsifjum vegna hrunsins.

3.10.2008

Kjaraviðræður hafnar við Reykjavíkurborg

Fyrsti fundur samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar hófust á þriðjudaginn 30. september þar sem félagið kynnti þá þætti sem það vildi ræða í komandi kjaraviðræðum og vinnulag sett niður. Fundað var aftur á fimmtudaginn 2. október og er ráðgert að funda nokkuð þétt á næstunni.

29.9.2008

Breytingar á akstursgjaldi og dagpeningum innanlands

Breytingar hafa orðið á akstursgjaldi (auglýsing nr.5/2008 ) og dagpeningum á ferðalögum innanlands (auglýsing nr. 6/2008). Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi slóð:  
http://www.fjarmalaraduneyti.is/starfsmenn-rikisins/yfirlit/kjarasamningar/ferdakostnadur/

19.9.2008

Starfsmat Reykjavíkurborg

Starfsheiti og sundirliðuð stig virkra starfa hjá Reykjavíkurborg hafa verið uppfærð miðað við ágúst 2008 - sjá listann hér.

18.9.2008

Eldri starfsmenn - Akkur vinnustaða

Málþing á vegum verkefnisstjórna 50+ verður haldið á Ketilshúsinu á Akureyri  fimmtudaginn 25. september nk. kl. 13 -16.
Jóhanna Sigurðardóttir mun flytja ávarp en auk þess verður fjöldi fyrirlestra um efnið. Sjá nánar í auglýsingu.

16.9.2008

Örnámskeið Framvegis inn á vinnustaði

Framvegis, miðstöð um símenntun í Reykjavík, býður upp á örnámskeið inni á vinnustöðum í tilefni Viku símenntunar. Heiti þessara örnámskeiða eru: „Kann ég allt, get ég allt?“, „Ritara- og skrifstofustjóranámið“, „Þjónusta fyrir starfsmenn hins opinbera“ og „Að hefja nám“ sem er námskeið með námsráðgjafa. Þeir sem hafa áhuga á að panta eitthvert þessara námskeiða getur sent beiðni á netfangið framvegis@framvegis.is eða hringt í síma 581-4914.

15.9.2008

Starfslokanámskeið í lok mánaðarins

Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB húsinu dagana 29. og 30. september og 1. október. Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Vonast ég til að félögin veki athygli á þessu námskeiði meðal félagsmanna sinna sem eru farnir að nálgast starfslok eða hafa nýlega lokið störfum. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 26. september 2008. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

12.9.2008

Borgarstjóri Reykjavíkur heimsækir StRv og BSRB

undefined

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur  átti fund með Ögmundi Jónassyni formanni BSRB, Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB og Garðari Hilmarssyni formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í BSRB húsinu í dag. Ögmundur sagði eftir fundinn að BSRB hefði ætíð leitast við að eiga gott samstarf við ráðamenn borgarinnar og þessi fundur með borgarstjóra hefði verið bæði ánægjulegur og upplýsandi fyrir alla aðila.

Eftir fundinn gaf borgarstjóri sér tíma og heilsaði upp á starfsmenn Starfsmannafélagsins.

 

10.9.2008

Samninganefndir félagsins komnar á fullt

undefined

Samninganefndir Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem eru með lausa kjarasamninga á haustmánuðum eru komnar á gott skrið í vinnu. Fulltrúar í samninganefndum fóru í síðustu viku á tveggja daga námskeið sem haldið var að Úlfljótsvatni. Þar var unnið með samtakamáttinn, samskipti og ýmislegt fleira gagnlegt. 

Nefndirnar funda nú reglulega, safna gögnum, undirbúa sig og setja sér markmið fyrir næstu kjarasamningsgerð.

21.8.2008

Tímamót í trúnaðarmannafræðslunni

Í vetur verður tekið upp nýtt form á trúnaðarmannafræðslu en það eru metnaðarfull og öflug þriggja daga trúnaðarmannanámskeið skipulögð af BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA).  Námskeiðin eru fimm talsins og byggjast upp á þrepakerfi.  Þegar trúnaðarmaður hefur lokið þrepi 1 getur hann tekið þrep 2 og svo koll af kolli og eru trúnaðarmenn hvattir til að sækja BSRB/FA námskeiðin.

9.7.2008

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning OR lokið

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning St.Rv og Or er lokið. Samningurinn var samþykktur með meirihluta atkvæða. Á kjörskrá voru 279, en alls kusu 106 eða 37,99%. Já sögðu 99 eða 93,4%. Nei sögðu 5 eða 4,7% auðir voru 2 eða 1,9%.

3.7.2008

Samkomulag um háskólamenntaða félagsmenn

Samkomulag náðist við fjármálaráðuneytið í gær vegna háskólamenntaðra starfsmanna sem starfa hjá ríkinu og eru félagsmenn í St.Rv.
Niðurstaða samkomulagsins varð á þá leið að farið verður eftir kjarasamningi sem BSRB félögin hafa þegar gert fyrir ríkisstarfsmenn innan bandalagsins. Samkomulagið verður kynnt á morgun, föstudag á LSH Fossvogi kl. 11:30

3.7.2008

St.Rv og og Or skrifuðu undir nýjann kjarasamning

undefined Samningar náðust milli Starfsmannafélags Reykjavíkborgar og Orkuveitu upp úr miðnætti í nótt. Samningurinn gildir frá 1. maí 2008 til 31. desember 2010 með endurskoðunarákvæði sambærilegum þeim sem samið var um á almennum markaði. Kynningarfundur verður í dag, 3. júlí kl. 16 í fyrirlestrarsal á 1. hæð fyrir félagsmenn. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn verður á föstudaginn 4. júlí og mánudaginn 7. júlí. milli kl. 11:00 og 13:00 báða dagana í starfsmannaaðstöðu við bókasafnið.

27.6.2008

Sumarlokun skrifstofu á Akranesi

Skrifstofa á Akranesi verður lokuð vegna sumarfrís frá og með 1. júlí og verður opnuð eftir sumarfrí 8. ágúst. Því er félagsmönnum á Akranesi bent á að leita til skrifstofu félagsins á Grettisgötu 89, í síma 525-8330 eða netfangið strv@bsrb.is

24.6.2008

Kjarasamningur við Félagsbústaði hf.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur gert nýjan kjarasamning við Félagsbústaði hf. Samningurinn er á svipuðum nótum og samningur BSRB við ríkið og gildir til 28. febrúar 2009. Samningurinn var kynntur á fundi með starfsmönnum og samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

23.6.2008

Trúnaðarmannanámskeið BSRB og FA í haust

Trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu halda áfram í haust. Fyrsti áfangi verður kenndur dagana 8. – 10. september og annar áfangi 15. – 17. september og 22. – 24. september. Námskeiðin eru haldin í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana. Trúnaðarmannafræðslan sem BSRB og Félagsmálaskóli alþýðu bjóða upp á er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi.

19.6.2008

Kjarasamningur við fjármálaráðuneytið samþykktur

Ríkisstarfsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar samþykktu kjarasamning BSRB við ríkið með 92,5% atkvæða þeirra sem greiddu atkvæði. 114 voru á kjörkskrá og af þeim greiddu atkvæði 53 eða 46%.

4.6.2008

Hækkun á akstursgjaldi og dagpeningum

Akstursgjald -  Dagpeningar
Aksturgreiðslur þeirra sem eru á kjarasamningum félagsins við Reykjavíkurborg, Strætó bs., Faxaflóahafnir og Orkuveitu taka mið af akstursgjaldi ríkisstarfsmanna.

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald:

  1. Fyrstu 10.000 km - kr. 88,50 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km - kr. 80,00 pr. km
  3. Umfram 20.000 km - kr. 71,00 pr. km

29.5.2008

Samningar BSRB og ríkis, kynningarfundir

BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan samning bandalagsins við ríkið.

27.5.2008

Ýmislegt

Félagsmönnum er bent á að hægt er að sækja um Iceland Express afsláttarmiða undir liðnum: Orlofsmál, hér á síðunni.


Dr. Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg er með morgunverðarerindi hjá BSRB fimmtudaginn 29. maí kl. 8.15 - 10.00.

26.5.2008

Samið við Fjármálaráðuneyti

Rétt fyrir miðnætti 25. maí undirritaði samninganefnd okkar, ásamt formanni nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkissjóðs vegna þeirra félaga (utan háskólamenntaðra starfsmanna) sem eru á launaskrá hjá ríkinu.

25.5.2008

Trúnaðarmanni sagt upp

Trúnaðarmanni hjá Strætó bs. var sagt upp á föstudag. Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur njóta trúnaðarmenn verndar í starfi og er óheimilt að segja þeim upp.  Starfsmannafélag Reykjavíkur  og BSRB hafa falið lögfræðingi bandalagsins að taka upp málið. Starfsmannafélag Reykjavíkur lítur málið mjög alvarlegum augum.

19.5.2008

Fundað stíft með samninganefnd ríkisins

Kjarasamningsviðræður eru á fullum gangi millli ríkisins og samninganefndar BSRB. Fundað var á laugardag og sunnudag. Nú á mánudegi hófst fundur klukkan 15 og stendur sá fundur enn. Fundað er í húsakynnum ríkissáttasemjara.

19.5.2008

Markvissar viðræður við samninganefnd ríkisins hafin

Fulltrúar BSRB áttu fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætis-, utanríkis-, fjármála- og félagsmálaráðherra vegna lausra samninga við ríkið, sl. fimmtudag. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur og niðurstaða hans sú að hafnar yrðu markvissar viðræður samninganefndar ríkisins og BSRB um gerð kjarasamnings.

7.5.2008

Gagnlegur fundur með ríkisstjórninni


Fundi fulltrúa BSRB og fjögurra ráðherra ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu lauk nú skömmu fyrir kl. 13.00. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur þar sem skipst var á skoðunum og upplýsingum. Það var sameiginleg niðurstaða aðila að efna til annars fundar með sömu aðilum í næstu viku. "Þá erum við að vonast til þessað afstaða ríkisstjórnarinnar til spurninga BSRB liggi skýrar fyrir," sagði Ögmundur.

2.5.2008

BSRB vill fund með ríkisstjórninni


Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Ögmundur Jónasson heilsast við upphafa samningafundarins.

Fyrsta formlega samningafundi BSRB og aðildarfélaga þess við launanefnd ríkisins lauk rétt áðan hjá Sáttasemjara ríkisins. Samninganefnd ríkisins heldur enn fast við að samið verði til langs tíma en BSRB vill að gengið verði hið fyrsta frá skammtímasamningi. Í framhaldi af þessari niðurstöðu fundarins vill BSRB fund með ríkisstjórninni til að fá hennar sýn á stöðu mála og hvaða ráðagerðir hún hefur á prjónunum.

30.4.2008

Verjum Kjörin

Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB; BHM, KÍ og SÍF skrifa öll undir 1. maí ávarpið 2008 sem er undir kjörorðinu VERJUM KJÖRIN. Ávarpið er hægt að sjá hér í heild sinni.

30.4.2008

1. maí hátíðarhöld

Félagsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í 1. maí hátíðarhöldunum. Dagskráin er á þá leið að safnast verður saman á Hlemmi kl. 13:00. Gangan leggur af stað kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Gengið verður niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Síðan hefst útifundur á Ingólfstorgi kl. 14:10. Sjá nánar dagskrá útifundar.

28.4.2008

Stjórn BSRB vill hefja viðræður um skammtímasamning

BSRB hvetur til þess að þegar í stað hefjist viðræður við fjármálaráðuneytið um  skammtíma samning. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag. Í ályktuninni ítrekar stjórnin mikilvægi þess að kjör innan almannaþjónustunnar verði stórbætt. Svo er komið að mjög víða er þar við alvarlega manneklu að stríða sem rekja má til bágra kjara og er brýnt að taka af alvöru á þeim vanda.

7.4.2008

Breyting á túlkun um fyrningu orlofs

Stjórnsýslu- og starfsmannasvið Reykjavíkurborgar gaf út þá túlkun í júní 2007 að aðeins væri hægt að fresta töku viðbótarorlofs, en lágmarksorlof (24 dagar) myndu fyrnast ef það væri ekki tekið fyrir lok orlofsársins, þ.e. fyrir 1. maí. Þetta mál hefur St.Rv. tekið upp í starfskjaranefnd, þar sem félaginu þótti ekki eðlilegt að orlof gæti fyrnst. Svar hefur borist frá Reykjavíkurborg þar sem tekið er undir með félaginu og Reykjavíkurborg hefur fallist á að það sé á ábyrgð stjórnenda að skipuleggja orlof starfsmanna. Því flyst ótekið orlof sem ekki hefur gefist tækifæri til þess að taka á milli orlofsára.

4.4.2008

Aðalfundur Félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík

Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík boðar stuðnningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi til aðalfundar.  Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 15. apríl nk. kl. 17:30 í Vogaskóla við Gnoðarvog/ Ferjuvog. Á dagskrá er skýrsla starfshóps. Kosning stjórnar og önnur mál.  Í lok fundar verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

19.3.2008

Leiðarkerfi fyrir neytendur

undefined

Síðastliðinn föstudag hleypti viðskiptaráðherra af stokkunum Leiðakerfi neytenda sem er gagnvirk vefgátt á vegum talsmanns neytenda þar sem neytendur geta á einum stað leitað bæði upplýsinga um rétt sinn og fengið aðstoð við að leita réttar síns - annað hvort beint hjá seljanda vöru eða þjónustu sem er fyrsta skrefið eða, ef það dugar ekki, með því að kerfið hjálpar við að setja saman kæru til úrskurðarnefndar eða annars aðila sem tekur á málum neytenda.  Allar upplýsingar er að finna á http://www.neytandi.is

 

9.3.2008

Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

adaf_2008_1
Laugardaginn 8. mars var haldinn aðalfundur Starfamannafélags Reykjavíkurborgar. Eftir lögbundin aðalfundarstörf, sem gengu vel fyrir sig, þá voru þrjár ályktanir  samþykktar eftir nokkrar umræður og breytingartillögur. Ályktanirnar fjalla um örar breytingar á stjórnun hjá Reykjavíkurborg og fyrirtækjum hennar og áhrif þess á líðan starfsmanna, kjaramál og um almenningsþjónustu.

3.3.2008

Ráðstefna um Launajafnrétti

Í tilefni af alþjóðlegum báráttudegi kvenna, bjóða samtök launafólks og Jafnréttisstofa til ráðstefnu um "aðferðir til þess að ná LAUNAJAFNRÉTTI -kostir, gallar og nýjar hugmyndir". Ráðstefnan er haldin í Rúgbráuðsgerðinni, Borgartúni 6. Fimmtudaginn 6. mars nk. kl. 13-16.15

20.2.2008

Hádegisfyrirlestur Rannsóknarstofu í vinnuvernd

  • Sitja erlendir starfsmenn á Íslandi við sama borð og innfæddir í sambærilegum stöðum?
  • Hvaða tækifæri hefur erlent starfsfólk til starfsþróunar?  

Þetta er meðal spurninga sem Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis-símenntunar ræðir í fyrirlestri á vegum Rannsóknastofu í vinnuvernd föstudaginn 22. febrúar kl. 12.15 – 13.15 í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101.

Fyrirlesturinn nefnist: Missum ekki erlent starfsfólk úr landi – gefum þeim tækifæri til menntunar og starfsþróunar.  

12.2.2008

Stjórn BSRB mótmælir forræðishyggju SA

"Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeirri kröfu sem Samtök atvinnulífsins hafa sett fram á hendur ríkisstjórninni um að hún fylgi þeirri launastefnu sem mótuð verði við samningaborð Samtaka atvinnulífsins. Þessi krafa um forræðisvald atvinnurekenda er ósvífin og ólýðræðisleg því hún byggir á því að hundsaðar verði kröfur sem fram koma frá hendi samtaka opinberra starfsmanna í kjarasamningum þegar þeir losna í vor. Krafan er einnig ósvífin að því leyti að hún byggir á því að launakjör á þeim stofnunum sem nú búa við vaxandi manneklu vegna bágra kjara verði ekki leiðrétt eins og margoft hefur verið látið í veðri vaka af hálfu stjórnvalda að gert verði í komandi kjarasamningum," segir m.a. í ályktun sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.

8.2.2008

Borgarráð samþykkir aukafjárveitingu vegna undirmönnunar

Á fundi Borgarráðs fimmtudaginn 7. febrúar var lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. þ.m.: Borgarráð samþykkir 65 mkr. aukafjárveitingu á árinu 2008 til viðbótar þeim 180 mkr. sem samþykktar hafa verið í fjárhagsáætlun vegna aðgerða í starfsmannamálum. Markmiðið er að mæta undirmönnun og álagi á starfsstöðum Reykjavíkurborgar. Mannauðsskrifstofu verði falið að útfæra nánar ráðstöfun ofangreindra fjármuna í samráði við sviðsstjóra fagsviða og skrifstofa.

7.2.2008

Ólöglegar uppsagnir á Landspítala

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala til að greiða þremur starfsmönnum bætur vegna uppsagna en dómurinn taldi, að ekki hefði verið rétt staðið að uppsögnum starfsmannanna árið 2006. Sá sem hæstu bæturnar hlýtur fær 900 þúsund, annar fær 400 þúsund og sá þriðji 300 þúsund.

7.2.2008

Samspil hljóðhönnunar og menningar á vinnustað

Ólafur Hjálmarsson fjallar um í fyrirlestri sem hann nefnir, Samspil hljóðhönnunar og menningar á vinnustað. Hvaða kostir og gallar fylgja því að vinna í opnu rými?

Meðal efnis sem fjallað verður um:

  • Hvaða máli skiptir hljóðhönnun?
  • Er hægt að taka tillit til ólíkra þarfa einstaklinga?
  • Er vinnuandinn ólíkur meðal starfsmanna sem vinna í opnu rými og þeirra sem vinna á lokuðum skrifstofum?

Fyrirlesturinn verður haldinn föstudaginn  8. febrúar kl. 12.15 – 13.15 í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101. Fyrirlesturinn er í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd.

6.2.2008

Tímamót í trúnaðarmannafræðslunni

BSRB í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu mun nú í vor og næstu misseri bjóða upp á mjög öfluga trúnaðarmannafræðslu sem er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið verður í fimm  hlutum. Fyrsti hluti hefst 17. mars nk. og lýkur 19 mars. Í þessum fyrsta áfanga er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Kennarar eru Haukur Harðarson, Maríanna Traustadóttir og Helga Björk Pálsdóttir. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.

1.2.2008

Breyttar dagsetningar á Hvort ég get, ekki málið, grunnur

Námskeiðið Hvort ég get, ekki málið... grunnur þar sem Hallfríður Þórarinsdóttir fjallar um sjálfsímynd og samskipti verður haldið 12., 14., 21. og 26. febrúar kl. 19-22, en ekki 29., 31. jan., 5. og 7. feb. eins og áður var auglýst. Námskeiðið miðar að því að auka sjálfstraust einstaklinga, gera þá öruggari og ánægðari með sig og kenna ýmsar aðferðir til að ná sínum markmiðum. Þátttakendur eru vaktir til vitundar um tengsl jákvæðrar sjálfsímyndar og góðra samskipta. Enn er hægt að skrá sig.

28.1.2008

Nýtt skráningarkerfi fyrir Gott að vita námskeiðin

Á vef St.Rv. er komið upp nýtt skráningarkerfi fyrir Gott að vita námskeiðin sem félagið hefur haldið í samstarfi við SFR undanfarin ár. Kerfið á að gers allt utanumhald námskeiða einfaldara fyrir umsjónarmenn og auðveldar aðgengi félagsmanna. Í fyrsta sinn sem félagsmaður skráir sig á námskeið í þessu nýja kerfi verður hann að byrja á því að skrá sig í nýskráningu, en eftir það nægir að setja inn kennitölu og lykilorð.  

Á vorönn eru áfram í boði sígild námskeið eins og Ljósmyndun, Hvort ég get, ekki málið (sjálfsímynd og samskipti) og Skapandi skrif, en einnig eitthvað nýtt í bland. Venjan er að opna fyrir skráningu um leið og Fréttabréf St.Rv. berst félagsmönnum, en því miður hefur útgáfa blaðsins tafist af óviðráðanlegum ástæðum. Þess vegna var dagskráin auglýst í Fréttablaðinu á föstudag og jafnframt opnað fyrir skráningu. Fyrstu námskeiðin hefjast 29. jan. þannig að það er um að gera fyrir áhugasama að skrá sig sem fyrst.  Dagskrá og skráning HÉR.

23.1.2008

Vinnan í lífi Íslendinga

Hádegisfyrirlestur 25. janúar kl. 12.15 – 13. 15 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands. Rannsóknastofa í vinnuvernd og Rannsóknarstöð þjóðmála efna til hádegisfyrirlestrar sem ber heitið Vinnan í lífi Íslendinga.
Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði í Háskóla Íslands mun fjalla um umfang vinnu í lífi Íslendinga í samanburði við aðrar þjóðir. Stefán fjallar bæði um vinnu á vinnumarkaði og á heimilum, sem og samanlagða heildarvinnu á markaði og á heimilum.

Aðgangur er ókeypis og opinn öllum sem áhuga hafa á málefni atvinnulífsins.

11.1.2008

Aðför LSH að réttindum og kjörum læknaritara

„Ég lít hugmyndir stjórnenda á Landspítala háskólasjúkrahúsi um að bjóða út störf læknaritara mjög alvarlegum augum enda augljóslega um að ræða aðför að réttindum og kjörum. Útboðin eru hugsuð til að  ná kostnaði niður og þar sem fyrst og fremst er um að ræða launakostnað er ljóst hvert spjótunum er beint," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB um áform Landspítalans að úthýsa störfum læknaritara.

11.1.2008

Slitnað upp úr viðræðum um vaktavinnumál

Í morgun slitnaði upp úr viðræðum um málefni vaktavinnufólks milli BSRB og BHM annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar. Þessar viðræður hafa staðið allar götur frá síðustu kjarasamningum en þá var gerð bókun þess efnis að farið yrði í saumana á málefnum vaktavinnufólks og leitað leiða til að gera vaktavinnu eftirsóknarverðari.

9.1.2008

Heimur sígildrar tónlistar

Píanóleikarinn Ólafur Elíasson stendur nú á næstunni fyrir námskeiði fyrir almenning þar sem hann leiðir námskeiðsgesti inn í heim sígildrar tónlistar á afar aðgengilegan og skemmtilegan hátt á fimm kvöldum. 
Hann gerir öllum félagsmönnum tilboð um afslátt á þessu námskeiði eða 9.500 kr. í stað 15.000 kr. fyrir öll kvöldin. Kynnið ykkur endilega námskeiðið á: www.myspace.com/heimur

heimur sígildrar tónlistar

 

7.1.2008

Umsóknir í orlofshús um páska

Umsóknareyðublöð fyrir úthlutun í orlofshús um páskana er hægt að nálgast hér. Frestur er til 11. febrúar að sækja um en orlofsnefnd mun sjá um úthlutun.

Ég vil sækja um orlofshús í páskaviku.

 

4.1.2008

Félagsmönnum stendur til boða að taka þátt í

STAFAGÖNGUNÁMSKEIÐI!
Byrjenda- og framhaldsnámskeið verður haldið 15. jan. til 14. febr. nk. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 til 18:30 og gengið frá Perlunni í Öskjuhlíð á þriðjudögum og Víkingsheimilinu í Fossvogsdal á fimmtudögum.

  • Þátttakendur þurfa að mæta með eigin stafi.
  • Kostnaður er kr. 5.000,- fyrir 10 tíma námskeið.
  • Skráning og nánari upplýsingar eru á netföngunum pallo@althingi.is eða snjoella@simnet.is og í síma 824-0440.

    Leiðbeinendur eru þau Páll Ólafsson og Snjólaug Bjarnadóttir íþróttakennarar og stafagönguleiðbeinendur.
Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English