Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

22.10.2008

Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd bandalagsins mótmæla

Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd bandalagsins mótmæla harðlega ákvörðun ríkis­stjórnarinnar sem kynnt var í gær að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi sem dagsett hafði verið 7. nóvember næstkomandi.  Í yfirlýsingu frá félags- og tryggingamálaráðuneyti segir að ólíklegt sé „að jafnréttisþingið nái markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar, þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja þar til umræðu eru bundnir við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast þeim aðstæðum sem ríkja á fjármálamarkaði.“

22.10.2008

Kjarasamningsviðræður

Í síðustu viku óskaði samninganefnd Reykjavíkurborgar eftir hléi á samningaviðræðunum við félagið. Reykjavíkurborg hefur fundað síðustu daga með öðrum sveitafélögum um fjárhagsstöðuna og útlitið í efnhags- og atvinnumálum. Mannauðsstjóri, borgarhagfræðingur og fjármálastjóri borgarinnar héldu s.l. mánudag sérstakan fund með fulltrúum heildarsamtaka launþega, m.a. BSRB, til að gera grein fyrir fjárhagsstöðunni og þeim vanda sem blasir við.   Samninganefnd Reykjavíkurborgar er þessa dagana að taka afstöðu til þeirra atriði sem samninganefndir aðila hafa þegar rætt um.  Þá er hún að ljúka við að vinna ítarlega sundurliðuð gögn sem báir aðilar munu nýta við endanlegt kostnaðarmat á þeim kjarasamningi sem nú er verið að semja um.  Áætlað er að samninganefndir hittist strax eftir helgi.  

20.10.2008

Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós

undefined
Aðalfundur BSRB hafnar því að almennt launafólk beri allan herkostnað af bruðli og óhófi undangenginna ára. Þá krefst fundurinn ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir skuldsetningu bankakerfisins og þar með þjóðarinnar. Einnig þarf að upplýsa um hvernig þessum fjármunum hefur verið ráðstafað í einkaþágu gæslumanna fjárins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í dag, 17. október, en ályktunin ber yfirskriftina Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós.

Ályktunin birtist orðrétt hér

14.10.2008

Vinnuverndarstarf á óvissutímum

Vinnueftirlitið og Rannsóknastofa í vinnuvernd sendir frá sér eftirfarandi orðsendingu sem á erindi til allra á vinnumarkaði. Þau efnahagslegu áföll sem nú dynja á íslensku þjóðinni koma við okkur öll og hefur áhrif á líðan okkar. Þær aðstæður sem nú hafa skapast gera að verkum að áhyggjur okkar beinast að mörgum þáttum og áhyggjurnar eru með okkur hvort sem við erum heima eða í vinnunni.

13.10.2008

Deilur hjá Strætó bs settar niður

Unnið er að því að koma samskiptum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og stjórnenda Strætó bs í eðlilegt horf en undanfarið ár hefur einkennst af harðvítugum deilum sem enduðu fyrir dómstólum. Í þann mund sem vitnaleiðslur áttu að hefjast var ákveðið að slíðra sverðin, setjast að samningaborði og leiða málin þannig til lykta.

9.10.2008

Ótímabært að meta tjón lífeyrissjóðanna

Stjórn BSRB hefur fylgst grannt með þróun mála undanfarna daga og haldið tvo stjórnarfundi frá því að ljóst var að íslenskir bankar stæðu frammi fyrir verulegum erfiðleikum sem síðan leiddu til hruns bankakerfisins. Ögmundur Jónasson formaður BSRB segir ljóst að lífeyrissjóðirnir hafi orðið fyrir miklum búsifjum vegna hrunsins.

3.10.2008

Kjaraviðræður hafnar við Reykjavíkurborg

Fyrsti fundur samninganefnda Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar hófust á þriðjudaginn 30. september þar sem félagið kynnti þá þætti sem það vildi ræða í komandi kjaraviðræðum og vinnulag sett niður. Fundað var aftur á fimmtudaginn 2. október og er ráðgert að funda nokkuð þétt á næstunni.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English