Fimmtudaginn 4. desember nk. verður hádegisverðarfróðleikur á vegum St.Rv. og SFR þar sem Gunnar Hersveinn heldur erindi sem hann kallar "Gildi samfélagsins og orðspor" og byggir hann á ný útgefinni bók sinni Orðspor - gildin í samfélaginu. Í bókinni fjallar hann um hvernig einstaklingar geta lagt öðrum lið og tekið þátt í því að bæta samfélag sitt. Skráning hér.
Föstudaginn 28. nóvember kl. 17 verður menningarleg upplyfting fyrir félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Menningar- og skemmtinefnd hefur fengið þrjá rithöfunda til þess að lesa upp úr bókum sínum en þau eru Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason og Kristján Hreinsson. Sjá nánar í auglýsingu.
| BSRB, Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi mánudaginn 24. nóvember nk. kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar | ![]() |
Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður.
Stjórn BSRB krefst lækkunar raunvaxta og endurskoðunar á vísitölugrunni auk aðgerða til að aðstoða fólk með vísitölubundin lán í því verðbólguskoti sem spáð er á næstunni. Ályktun stjórnarfundar BSRB fer hér á eftir:
BSRB mótmælir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um flatan 10% niðurskurð á velferðarkerfinu og telur það fráleitt á þeim samdráttartímum sem framundan eru. Ályktun stjórnar fer hér á eftir:
Borgarholtsskóli býður upp á nám fyrir stuðningsfulltrúa og skólaliða . Einnig býður skólinn upp á Félags- og tómstundanám fyrir starfsmenn sem vinna að tómstundum barna, unglinga og fullorðinna. Um er að ræða nám á svokallaðri brúar leið þar sem starfsreynsla og námskeið eru metin til styttingar á braut.
![]() |
Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, fimmtudaginn 20. nóvember, kl. 16:30 – 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um kosti og galla verðtryggingar og hvort æskilegt sé að afnema hana tímabundið eða til langframa. Framsögu hafa Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur og Pétur H. Blöndal alþingismaður. |
Fjallað er um stöðuna á vinnumarkaði, skattleysismörk og persónuafslátt í Dreifibréfi BSRB sem var að koma út. Atvinnuleysi hefur aukist verulega og má gera ráð fyrir að það aukist enn frekar á næstu mánuðum.
Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Faxaflóahafnir sf. er lokið. Á kjörskrá voru 31 en atkvæði greiddu 21 eða 67,7%.
Já sögðu 20 eða 95,2%, nei sögðu 0 og einn seðill var auður.
Undirritaður hefur verið samningur á milli BSRB og Nýja tölvu- og viðskiptaskólan um afsláttakjör fyrir BSRB félaga og sérstök námskeið í Office 2007 tölvuforritum, sem er nýjasta uppfærsla af algengustu forritum fyrir PC-tölvur. Samninginn undirrituðu Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB og Jón Vignir Karlsson skólastjóri NTV.
Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu.
Hádegisfyrirlestur var í dag á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR. Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir frá Rannsóknarstofu í vinnuvernd hélt áhugaverðann fyrirlestu undir nafninu Líðan þín í vinnunni á óvissutímum - samstaða á vinnustað. Hér er hægt að nálgast glærur af fyrirlestrinum.
Á fjölmennum fundi fulltrúaráðs í dag var Ögmundur Jónasson formaður BSRB með erindi um stöðuna í samfélaginu. Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fór yfir stöðuna í kjarasamningsviðræðum félagsins við viðsemjendur. Í lok fundar voru tvær ályktanir samþykktar.
![]() |
Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri. Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri. Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. auglýsing |

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Kristín Völundardóttir sýslumaður á Ísafirði og Hulda Anna Arnljótsdóttir framkvæmdastjóri Starfsmenntar.
Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki skóla og fræðsluaðila vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið var í samvinnu við Sýslumannsembættið. Afhending verðlaunanna fór fram í dag í BSRB húsinu. Samskip fékk verðlaunin í flokki fyrirtækja fyrir metnaðarfullt fræðslustarf. Engin verðlaun voru að þessu sinni veitt í opnum flokki félagasamtaka og einstaklinga.
Kjarasamningur milli Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna var undirritaður í dag, með fyrirvara um samþykki félagsmanna og stjórn Faxaflóahafna. Ráðgert er að halda kynningafund seinni partinn í þessari viku fyrir félagsmenn á Faxaflóahöfnum og ganga til atkvæða um hann.

Stofnaður verður formlegur gönguhópur sem hittist tvisvar í mánuði til að byrja með, 2. og 4. hvern mánudag kl. 17.30 fyrir framan aðalinngang Skautahallarinnar. Sjáumst 10. nóvember næstkomandi.
Eftir nokkuð langt hlé á viðræðum, milli samninganefndar Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, hófust viðræður að nýju. Tveir fundir voru í síðustu viku og verður framhald á þeim viðræðum strax í dag.