Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20.2.2008

Hádegisfyrirlestur Rannsóknarstofu í vinnuvernd

  • Sitja erlendir starfsmenn á Íslandi við sama borð og innfæddir í sambærilegum stöðum?
  • Hvaða tækifæri hefur erlent starfsfólk til starfsþróunar?  

Þetta er meðal spurninga sem Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis-símenntunar ræðir í fyrirlestri á vegum Rannsóknastofu í vinnuvernd föstudaginn 22. febrúar kl. 12.15 – 13.15 í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101.

Fyrirlesturinn nefnist: Missum ekki erlent starfsfólk úr landi – gefum þeim tækifæri til menntunar og starfsþróunar.  

12.2.2008

Stjórn BSRB mótmælir forræðishyggju SA

"Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeirri kröfu sem Samtök atvinnulífsins hafa sett fram á hendur ríkisstjórninni um að hún fylgi þeirri launastefnu sem mótuð verði við samningaborð Samtaka atvinnulífsins. Þessi krafa um forræðisvald atvinnurekenda er ósvífin og ólýðræðisleg því hún byggir á því að hundsaðar verði kröfur sem fram koma frá hendi samtaka opinberra starfsmanna í kjarasamningum þegar þeir losna í vor. Krafan er einnig ósvífin að því leyti að hún byggir á því að launakjör á þeim stofnunum sem nú búa við vaxandi manneklu vegna bágra kjara verði ekki leiðrétt eins og margoft hefur verið látið í veðri vaka af hálfu stjórnvalda að gert verði í komandi kjarasamningum," segir m.a. í ályktun sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.

8.2.2008

Borgarráð samþykkir aukafjárveitingu vegna undirmönnunar

Á fundi Borgarráðs fimmtudaginn 7. febrúar var lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. þ.m.: Borgarráð samþykkir 65 mkr. aukafjárveitingu á árinu 2008 til viðbótar þeim 180 mkr. sem samþykktar hafa verið í fjárhagsáætlun vegna aðgerða í starfsmannamálum. Markmiðið er að mæta undirmönnun og álagi á starfsstöðum Reykjavíkurborgar. Mannauðsskrifstofu verði falið að útfæra nánar ráðstöfun ofangreindra fjármuna í samráði við sviðsstjóra fagsviða og skrifstofa.

7.2.2008

Ólöglegar uppsagnir á Landspítala

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala til að greiða þremur starfsmönnum bætur vegna uppsagna en dómurinn taldi, að ekki hefði verið rétt staðið að uppsögnum starfsmannanna árið 2006. Sá sem hæstu bæturnar hlýtur fær 900 þúsund, annar fær 400 þúsund og sá þriðji 300 þúsund.

7.2.2008

Samspil hljóðhönnunar og menningar á vinnustað

Ólafur Hjálmarsson fjallar um í fyrirlestri sem hann nefnir, Samspil hljóðhönnunar og menningar á vinnustað. Hvaða kostir og gallar fylgja því að vinna í opnu rými?

Meðal efnis sem fjallað verður um:

  • Hvaða máli skiptir hljóðhönnun?
  • Er hægt að taka tillit til ólíkra þarfa einstaklinga?
  • Er vinnuandinn ólíkur meðal starfsmanna sem vinna í opnu rými og þeirra sem vinna á lokuðum skrifstofum?

Fyrirlesturinn verður haldinn föstudaginn  8. febrúar kl. 12.15 – 13.15 í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101. Fyrirlesturinn er í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd.

6.2.2008

Tímamót í trúnaðarmannafræðslunni

BSRB í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu mun nú í vor og næstu misseri bjóða upp á mjög öfluga trúnaðarmannafræðslu sem er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið verður í fimm  hlutum. Fyrsti hluti hefst 17. mars nk. og lýkur 19 mars. Í þessum fyrsta áfanga er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Kennarar eru Haukur Harðarson, Maríanna Traustadóttir og Helga Björk Pálsdóttir. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.

1.2.2008

Breyttar dagsetningar á Hvort ég get, ekki málið, grunnur

Námskeiðið Hvort ég get, ekki málið... grunnur þar sem Hallfríður Þórarinsdóttir fjallar um sjálfsímynd og samskipti verður haldið 12., 14., 21. og 26. febrúar kl. 19-22, en ekki 29., 31. jan., 5. og 7. feb. eins og áður var auglýst. Námskeiðið miðar að því að auka sjálfstraust einstaklinga, gera þá öruggari og ánægðari með sig og kenna ýmsar aðferðir til að ná sínum markmiðum. Þátttakendur eru vaktir til vitundar um tengsl jákvæðrar sjálfsímyndar og góðra samskipta. Enn er hægt að skrá sig.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English