Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.4.2008

Verjum Kjörin

Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB; BHM, KÍ og SÍF skrifa öll undir 1. maí ávarpið 2008 sem er undir kjörorðinu VERJUM KJÖRIN. Ávarpið er hægt að sjá hér í heild sinni.

30.4.2008

1. maí hátíðarhöld

Félagsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í 1. maí hátíðarhöldunum. Dagskráin er á þá leið að safnast verður saman á Hlemmi kl. 13:00. Gangan leggur af stað kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Gengið verður niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Síðan hefst útifundur á Ingólfstorgi kl. 14:10. Sjá nánar dagskrá útifundar.

28.4.2008

Stjórn BSRB vill hefja viðræður um skammtímasamning

BSRB hvetur til þess að þegar í stað hefjist viðræður við fjármálaráðuneytið um  skammtíma samning. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag. Í ályktuninni ítrekar stjórnin mikilvægi þess að kjör innan almannaþjónustunnar verði stórbætt. Svo er komið að mjög víða er þar við alvarlega manneklu að stríða sem rekja má til bágra kjara og er brýnt að taka af alvöru á þeim vanda.

7.4.2008

Breyting á túlkun um fyrningu orlofs

Stjórnsýslu- og starfsmannasvið Reykjavíkurborgar gaf út þá túlkun í júní 2007 að aðeins væri hægt að fresta töku viðbótarorlofs, en lágmarksorlof (24 dagar) myndu fyrnast ef það væri ekki tekið fyrir lok orlofsársins, þ.e. fyrir 1. maí. Þetta mál hefur St.Rv. tekið upp í starfskjaranefnd, þar sem félaginu þótti ekki eðlilegt að orlof gæti fyrnst. Svar hefur borist frá Reykjavíkurborg þar sem tekið er undir með félaginu og Reykjavíkurborg hefur fallist á að það sé á ábyrgð stjórnenda að skipuleggja orlof starfsmanna. Því flyst ótekið orlof sem ekki hefur gefist tækifæri til þess að taka á milli orlofsára.

4.4.2008

Aðalfundur Félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík

Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík boðar stuðnningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi til aðalfundar.  Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 15. apríl nk. kl. 17:30 í Vogaskóla við Gnoðarvog/ Ferjuvog. Á dagskrá er skýrsla starfshóps. Kosning stjórnar og önnur mál.  Í lok fundar verður boðið upp á kaffi og meðlæti.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English