BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan samning bandalagsins við ríkið.
Félagsmönnum er bent á að hægt er að sækja um Iceland Express afsláttarmiða undir liðnum: Orlofsmál, hér á síðunni.
Rétt fyrir miðnætti 25. maí undirritaði samninganefnd okkar, ásamt formanni nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkissjóðs vegna þeirra félaga (utan háskólamenntaðra starfsmanna) sem eru á launaskrá hjá ríkinu.
Trúnaðarmanni hjá Strætó bs. var sagt upp á föstudag. Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur njóta trúnaðarmenn verndar í starfi og er óheimilt að segja þeim upp. Starfsmannafélag Reykjavíkur og BSRB hafa falið lögfræðingi bandalagsins að taka upp málið. Starfsmannafélag Reykjavíkur lítur málið mjög alvarlegum augum.
Kjarasamningsviðræður eru á fullum gangi millli ríkisins og samninganefndar BSRB. Fundað var á laugardag og sunnudag. Nú á mánudegi hófst fundur klukkan 15 og stendur sá fundur enn. Fundað er í húsakynnum ríkissáttasemjara.

Fulltrúar BSRB áttu fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætis-, utanríkis-, fjármála- og félagsmálaráðherra vegna lausra samninga við ríkið, sl. fimmtudag. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur og niðurstaða hans sú að hafnar yrðu markvissar viðræður samninganefndar ríkisins og BSRB um gerð kjarasamnings.

Fundi fulltrúa BSRB og fjögurra ráðherra ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu lauk nú skömmu fyrir kl. 13.00. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur þar sem skipst var á skoðunum og upplýsingum. Það var sameiginleg niðurstaða aðila að efna til annars fundar með sömu aðilum í næstu viku. "Þá erum við að vonast til þessað afstaða ríkisstjórnarinnar til spurninga BSRB liggi skýrar fyrir," sagði Ögmundur.

Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Ögmundur Jónasson heilsast við upphafa samningafundarins.
Fyrsta formlega samningafundi BSRB og aðildarfélaga þess við launanefnd ríkisins lauk rétt áðan hjá Sáttasemjara ríkisins. Samninganefnd ríkisins heldur enn fast við að samið verði til langs tíma en BSRB vill að gengið verði hið fyrsta frá skammtímasamningi. Í framhaldi af þessari niðurstöðu fundarins vill BSRB fund með ríkisstjórninni til að fá hennar sýn á stöðu mála og hvaða ráðagerðir hún hefur á prjónunum.