Í vetur verður tekið upp nýtt form á trúnaðarmannafræðslu en það eru metnaðarfull og öflug þriggja daga trúnaðarmannanámskeið skipulögð af BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA). Námskeiðin eru fimm talsins og byggjast upp á þrepakerfi. Þegar trúnaðarmaður hefur lokið þrepi 1 getur hann tekið þrep 2 og svo koll af kolli og eru trúnaðarmenn hvattir til að sækja BSRB/FA námskeiðin.