Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.9.2008

Breytingar á akstursgjaldi og dagpeningum innanlands

Breytingar hafa orðið á akstursgjaldi (auglýsing nr.5/2008 ) og dagpeningum á ferðalögum innanlands (auglýsing nr. 6/2008). Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi slóð:  
http://www.fjarmalaraduneyti.is/starfsmenn-rikisins/yfirlit/kjarasamningar/ferdakostnadur/

19.9.2008

Starfsmat Reykjavíkurborg

Starfsheiti og sundirliðuð stig virkra starfa hjá Reykjavíkurborg hafa verið uppfærð miðað við ágúst 2008 - sjá listann hér.

18.9.2008

Eldri starfsmenn - Akkur vinnustaða

Málþing á vegum verkefnisstjórna 50+ verður haldið á Ketilshúsinu á Akureyri  fimmtudaginn 25. september nk. kl. 13 -16.
Jóhanna Sigurðardóttir mun flytja ávarp en auk þess verður fjöldi fyrirlestra um efnið. Sjá nánar í auglýsingu.

16.9.2008

Örnámskeið Framvegis inn á vinnustaði

Framvegis, miðstöð um símenntun í Reykjavík, býður upp á örnámskeið inni á vinnustöðum í tilefni Viku símenntunar. Heiti þessara örnámskeiða eru: „Kann ég allt, get ég allt?“, „Ritara- og skrifstofustjóranámið“, „Þjónusta fyrir starfsmenn hins opinbera“ og „Að hefja nám“ sem er námskeið með námsráðgjafa. Þeir sem hafa áhuga á að panta eitthvert þessara námskeiða getur sent beiðni á netfangið framvegis@framvegis.is eða hringt í síma 581-4914.

15.9.2008

Starfslokanámskeið í lok mánaðarins

Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB húsinu dagana 29. og 30. september og 1. október. Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Vonast ég til að félögin veki athygli á þessu námskeiði meðal félagsmanna sinna sem eru farnir að nálgast starfslok eða hafa nýlega lokið störfum. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 26. september 2008. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

12.9.2008

Borgarstjóri Reykjavíkur heimsækir StRv og BSRB

undefined

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur  átti fund með Ögmundi Jónassyni formanni BSRB, Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB og Garðari Hilmarssyni formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í BSRB húsinu í dag. Ögmundur sagði eftir fundinn að BSRB hefði ætíð leitast við að eiga gott samstarf við ráðamenn borgarinnar og þessi fundur með borgarstjóra hefði verið bæði ánægjulegur og upplýsandi fyrir alla aðila.

Eftir fundinn gaf borgarstjóri sér tíma og heilsaði upp á starfsmenn Starfsmannafélagsins.

 

10.9.2008

Samninganefndir félagsins komnar á fullt

undefined

Samninganefndir Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem eru með lausa kjarasamninga á haustmánuðum eru komnar á gott skrið í vinnu. Fulltrúar í samninganefndum fóru í síðustu viku á tveggja daga námskeið sem haldið var að Úlfljótsvatni. Þar var unnið með samtakamáttinn, samskipti og ýmislegt fleira gagnlegt. 

Nefndirnar funda nú reglulega, safna gögnum, undirbúa sig og setja sér markmið fyrir næstu kjarasamningsgerð.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English